Óskum eftir umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2026-2027

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
29.04.2026
Umsóknarfrestur til:
15.05.2026
Tengiliður:
lilja@gsnb.is

Auglýst er eftir tveimur umsjónarkennurum á yngsta- og miðstig í fullt starf, á starfstöðvum á Hellissandi og í Ólafsvík, frá 1. ágúst 2026.

Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 220 nemenda grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík (5.-10.bekkur), á Hellissandi (1.-4.bekkur) og á Lýsu (1.-10.bekkur). Við skólann starfar vel menntað og hæft starfsfólk. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur áherslu á átthagafræði. Allar starfstöðvar flagga Grænfána.

Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans, á slóðinni http://www.gsnb.is

Hlutverk:
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda. Hafa umsjón með daglegu skólastarfi sem tengist viðkomandi umsjónarhópi. Vera tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn. Fylgjast með velferð nemenda, hlú að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar. Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Kröfur:
  • - Leyfisbréf, - Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum, - Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar, - Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi. - Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Hlunnindi:
  • Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
  • Getum við bætt efni þessarar síðu?