Óskum eftir tónmennta- og heimilisfræðikennurum í hlutastörf

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
01.05.2026
Umsóknarfrestur til:
15.05.2026
Tengiliður:
lilja@gsnb.is

Auglýst er eftir kennurum í hlutastörf frá 1.ágúst 2026:


  • Tónmenntakennari í 30% starf við starfstöðina á Hellissandi.
  • Heimilisfræðikennari í 60% starf við starfstöðina í Ólafsvík.


Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 220 nemenda grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík (5.-10.bekkur), á Hellissandi (1.-4.bekkur) og á Lýsu (1.-10.bekkur). Við skólann starfar vel menntað og hæft starfsfólk. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur áherslu á átthagafræði. Allar starfstöðvar flagga Grænfána.


Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefstíðunni http://www.gsnb.is

Hlutverk:
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda. Hafa umsjón með daglegu skólastarfi sem tengist viðkomandi umsjónarhópi. Fylgjast með velferð nemenda, hlú að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar. Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Kröfur:
  • Leyfisbréf. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum. Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar,. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. *Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
  • Hlunnindi:
  • Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
  • Getum við bætt efni þessarar síðu?