Óskum eftir kennurum fyrir skólaárið 2026-2027

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
30.04.2026
Umsóknarfrestur til:
15.05.2026
Tengiliður:
lilja@gsnb.is

Auglýsum eftir kennurum í 100% starf í eftirfarandi stöður frá og með 1.ágúst 2026:


Kennara á mið- og unglingastigi, helstu kennslugreinar íslenska og stærðfræði.


Kennara við Lýsudeild, helstu kennslugreinar stærðfræði, danska, samfélagsfræði og textílmennt. 


Grunnskóli Snæfellsbæjar er heildstæður 220 nemenda grunnskóli með þrjár starfsstöðvar, í Ólafsvík (5.-10.bekkur), á Hellissandi (1.-4.bekkur) og á Lýsu (1.-10.bekkur). Við skólann starfar vel menntað og hæft starfsfólk. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti með það að markmiði að gera hvern einstakling tilbúinn til þátttöku í frekara námi og lýðræðissamfélagi. Skólinn leggur áherslu á átthagafræði. Allar starfstöðvar flagga Grænfána.


Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans, á slóðinni http://www.gsnb.is

Hlutverk:
  • Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrár grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda. Vera tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn. Fylgjast með velferð nemenda, hlú að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar. Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
  • Kröfur:
  • Leyfisbréf. Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum. Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar,. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi. Góð íslenskukunnátta er skilyrði. *Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
  • Hlunnindi:
  • Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 27.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
  • Getum við bætt efni þessarar síðu?