Leikskólakennari/Þroskaþjálfi óskast

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
26.05.2026
Umsóknarfrestur til:
05.06.2026
Tengiliður:
leikskolar@snb.is

Leikskóli Snæfellsbæjar óskar eftir að ráða leikskólakennara / þroskaþjálfa til starfa við starfsstöð skólans í Ólafsvík / Krílakot.

Starfshlutfall 80 - 100 %















Hlutverk:
  • -Vinnur að uppeldi og menntun barnanna, fylgist með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega -Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra -Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum -Tekur þátt í teymisvinnu innan skólans.
  • Kröfur:
  • Leyfisbréf sem leikskólakennari/þroskaþjálfi. Áhugi á starfi með börnum og inngildandi leikskólastarfi. Jákvæðni, frumkvæði og góð samskiptahæfni. Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð. Reynsla af starfi í leikskóla eða með börnum með sérþarfir er kostur. Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Hlunnindi:
  • Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum. Starfsfólk Snæfellsbæjar á rétt á 31.500 kr. líkamsræktarstyrk á hverju ári.
  • Getum við bætt efni þessarar síðu?