Leiðbeinandi óskast í Smiðjuna í Ólafsvík, virkni og hæfingastöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu.

Sækja um starf
Umsóknarfrestur frá:
11.05.2026
Umsóknarfrestur til:
25.05.2026
Tengiliður:
thorheidur@fssf.is


Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf í Smiðjunni í Ólafsvík, virkni og hæfingastöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu.

 

  • Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma. 
  • Ráðið er í starfið tímabundið í 1 ár vegna barneignaleyfis.
  • Umsækjandi þarf að geta hafið störf frá og með mánudeginum 17.ágúst 2026.
  • Laun samkv. kjarasamningi sveitarfélaganna og viðkomandi stéttarfélags.
Kröfur:
  • • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er kostur. • Góð íslenskukunnátta er krafa. • Þekking á málaflokk fólks með fötlun er kostur. • Góð almenn tölvukunnátta er kostur. • Hreint sakavottorð er krafa. • Stundvísi er mikilvæg. • Geta sýnt sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleika. • Búa yfir samstarfsvilja og þolinmæði ásamt hæfni í mannlegum samskiptum. • Áhugi á málefnum fólks með fötlun. • Samviskusemi og skipulögð vinnubrögð í daglegu starfi og samskiptum. • Færni í að eiga gott samstarf og samskipti. • Æskilegt er að vera við góða líkamlega og andlega heilsu. • Framfylgir hlutverki og markmiðum þjónustueiningar sem leiðbeinandi starfar á, undir stjórn yfirmanns og í samvinnu við hann. • Smiðjan er reyklaus vinnustaður
  • Getum við bætt efni þessarar síðu?