Fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni hjá Snæfellsbæ
Sækja um starfUmsóknarfrestur frá:
20.03.2026
Umsóknarfrestur til:
29.04.2026
Tengiliður:
smarijonas@snb.is
Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum 18 ára og eldri til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar. Um er að ræða almenna útivinnu við Áhaldahúss Snæfellsbæjar. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og vera reiðubúnir að starfa við áður talin störf á þriggja mánaða tímabili, eða frá maí 2026.
Almennar kröfur til starfsmanna sumarvinnu
Sumarvinna
- Um er að ræða 100% störf í þrjá mánuði, frá maí 2026.
- Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
- Umsækjendur þurfa að vera duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
- Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.