Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga
23. desember
17:00
Félagsheimilið Röst
Á fjölda heimila í Snæfellsbæ koma jólin ekki fyrr en farið hefur verið á árleg leikfangahappdrætti Lionsklúbbanna. Leikfangahappdrættin eru ávallt vel sótt enda veglegir vinningar í boði og mikil tilhlökkun hjá yngri kynslóðinni ár hvert.
Leikfangahappdrætti Lionsklúbbs Nesþinga verður að vanda á Þorláksmessu og hefst kl. 17:00 í Röstinni á Hellissandi. Happdrættismiðar eru seldir í Hraðbúðinni. Auk þess verður að hægt að kaupa miða í Röstinni frá kl. 15:00-17:00 á Þorláksmessu.