Leikskóli Snæfellsbæjar
Sækja um starfÓskar eftir að ráða leikskólakennara til starfa á Krílakoti Ólafsvík.
Um er að ræða 100% stöðu í afleysingum innan leikskólans.
Menntunar- og hæfnikröfur:
· Leyfisbréf kennara, lög nr. 95/2019 og eða
· Leikskólakennararéttindi
Fáist ekki menntaður leikskólakennari eða einstaklingur með aðra uppeldismenntun og/eða reynslu kemur til greina að ráða leiðbeinenda.
Viðkomandi þarf að búa yfir:
· Góðri íslenskukunnáttu
· Áhuga, reynslu og hæfni í starfi með börnum
· Góðum samskiptahæfileikum
· Jákvæðni, frumkvæði og góðum samstarfsvilja
· Góðri færni í mannlegum samskiptum
· Sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
· Hreinu sakavottorði
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2025
Leikskólastjóri áskilur sér rétt að ráða hvern sem er eða hafna öllum umsóknum.
Nánari upplýsingar veita Hermína K. Lárusdóttir leikskólastjóri í síma 433 6926 á milli kl. 9-14 alla virka daga eða á netfanginu leikskolar@snb.is.