Opið fyrir umsóknir í vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2024

Snæfellsbær óskar eftir umsóknum um störf í skemmtilegri og lærdómsríkri sumarvinnu við vinnuskóla Snæfellsbæjar sumarið 2024.

Vinnuskólinn verður starfræktur í sex vikur, frá 10. júní til 19. júlí og er fyrir nemendur í 8. - 10. bekk og unglinga sem fæddir eru árið 2007.

Nánari upplýsingar um vinnuskóla, laun og þess háttar má nálgast á upplýsingasíðu um vinnuskóla hér á vefsíðunni.

Umsóknarfrestur er til 30. maí nk. Sótt er um starf í vinnuskóla í þjónustugátt Snæfellsbæjar. Umsóknir sem berast í tölvupósti eða með öðrum hætti eru ekki teknar gildar.

Nánar: