Bjarnarfoss

Áningarstaðurinn við Bjarnarfoss hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu 2018.

Bjarnarfoss er tignarlegur foss, ofan við Búðir, sem fellur fram af hamrabrún fyrir neðan Mælifell. Fossinn, ásamt stuðlabergshömrunum í kring, er á Náttúruminjaskrá og í brekkunum við fossinn er mikið blómgresi.

Stórt bílastæði er fyrir neðan fossinn og góður göngustígur upp í brekkurnar undir fossinum.

Getum við bætt efni þessarar síðu?