Snæfellsjökulshlaupið

Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 22. júní n.k og er þetta er í þrettánda skiptið sem hlaupið er haldið.

Hlaupið hefur fengið mjög góðar viðtökur undanfarin ár og heppnast mjög vel. Ræst verður frá Arnarstapa kl. 12:00. Boðið verður upp á rútuferð frá Ólafsvík til Arnarstapa fyrir þá sem vilja.

  • Í ár verður fjöldi þátttakenda takmarkaður við 350 manns.
  • Skráningu lýkur kl. 24:00 sunnudaginn 16. júní.
  • Þar sem upphafsstaður hlaupsins er rúmgóður verða allir ræstir í einu.
  • Mælst er til að hröðustu hlaupararnir séu fyrstir í ræsingu.
  • Drykkjastöðvarnar verða tvær líkt og í fyrra, mun Björgunarsveitin Lífsbjörg sjá um þær. Þar verður boðið upp á vatn og orkudrykk. Umhverfisvæn einnota pappaglös verða í boði sem hent er svo í ruslafötu. En öllum er frjálst að vera með sín drykkjarílát.
  • Vegleg útdráttarverðlaun verða í boði
  • Allir þátttakendur fá smá glaðning í poka að hlaupi loknu.

Hlaupaleiðin

Hlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 metra hæð. Síðan tekur hlaupaleiðin að smá lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa kljást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, en fer það eftir því hvað veturinn var snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Fjórar drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um. Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar hafa kost á að skilja eftir auka hluti og fatnað sem verður afhendur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Einnig tekur Björgunarsveitin við fatnaði við drykkjarstöðvar á hlaupaleiðinni og verður afhendur í Sjómannagarðinum að hlaupi loknu.

Staður og tímasetning

Hlaupið verður ræst frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Ræst verður klukkan 12:00 frá veitingastaðnum Arnarbæ á Arnarstapa.
Rúta verður fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og kostar 2.500 kr.
Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.

Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát í skemmtilegu hlaupi.

Nánari upplýsingar:

Ingunn Ýr Angantýsdóttir s: 858 7670 og netfangið sjhlaup@gmail.com
Sigrún Ólafsdóttir s: 894 2446 og netfangið sjhlaup@gmail.com

Getum við bætt efni þessarar síðu?