Snæfellsbær efnir til kynningarátaks - komdu fagnandi

Snæfellsbær efnir til kynningarátaks sem miðar að því að kynna Snæfellsbæ og kosti þess að búa í sveitarfélaginu. Átakinu er jafnframt ætlað að virka til stuðnings ferðaþjónustu á svæðinu.

Kynningarátakið hefur fengið nafnið Snæfellsbær - komdu fagnandi og er ætlað að draga fram og varpa jákvæðu ljósi á þjónustu, mannlíf og lífið undir Jökli.

Helsta markmið kynningarátaksins er að efla ásýnd Snæfellsbæjar og segja frá kostum þess að búa í okkar fallega og fjölskylduvæna sveitarfélagi. Á næstu dögum byrjar efni að birtast á samfélagsmiðlum en jafnframt er horft til þess að efla kynningarstarf í víðari skilningi þegar fram í sækir.

Við hvetjum íbúa til að fylgja eftirfarandi síðum og taka vel í kynningarátakið sem verið er að ýta úr vör.

Snæfellsbær - komdu fagnandi!