Lausar stöður kennara við Grunnskóla Snæfellsbæjar

Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir kennurum í eftirfarandi stöður við grunnskólann í Ólafsvík og á Hellissandi.

  • Umsjónarkennurum í yngri deild (1. - 5. bekk)
  • Kennara í textílmennt í 100% starf

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar
  • Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknir sendist fyrir 17. mars til skólastjóra á neðangreint netfang.

Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894 9903 eða á netfanginu hilmara@gsnb.is.