Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 17:31 af www.snb.is

Viltu gerast áskrifandi?

17. maí 2013 11:54

Sumarstörf með fötluðum börnum

Sumarstörf – sumarstörf – sumarstörf

 

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga óskar eftir umsóknum um sumarstarf með fötluðum börnum/ungmennum fyrir sumarið 2013, Í Snæfellsbæ og Stykkishólmi.

 

Vinnutími alla virka daga frá kl. 08:00 – 16:00.

Tímabil:  Júní og júlí

 

Við auglýsum einnig eftir afleysingarstarfsmanni í Ásbyrgi – vinnustofu/hæfingu fatlaðs fólks í Stykkishólmi frá 1.júlí til 15.ágúst.

Vinnutími virka daga, frá kl. 8.00 – 16.00.

 

 

Starf við liðveislu

 

Einnig auglýsum við eftir umsóknum um starf í liðveislu með fötluðum börnum/ungmönnum. Afar hentugt með skóla eða sem aukavinna.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi SDS.

 

Umsækjendur þurfa að;

·        Vera orðnir 18 ára

·        Framvísa sakavottorði með umsókn

·        Gera grein fyrir menntun og fyrri störfum

 

Frekari upplýsingar veitir Svanhvít Sjöfn Skjaldardóttir, ráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu  Snæfellinga  í síma 430-7800.  Umsóknir skulu berast Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga,  Klettsbúð 4,  360 Hellissandi eða í tölvupósti svanhvit@fssf.is     .

 

Umsóknarfrestur er til og með 27.maí

Forstöðumaður

 

 
17. maí 2013 11:53

FSN auglýsir eftir fjármálastjóra

Fjölbrautaskóli Snæfellinga auglýsir eftir fjármálastjóra í 50% stöðu til afleysingar frá 01.08.2013 -01.02.2014.

Laun greiðast samkvæmt stofnanasamningi skólans.

Fjármálastjóri annast allar fjárreiður skólans. Í því er meðal annars fólgið að færa bókhald, gera fjárhags- og rekstraráætlanir, afstemmingar og fleira.

Menntunar og hæfniskröfur:

·         Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg.

  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
  • Þekking af bókhaldi æskileg.

·         Skipulögð/lagður.

·         Góð tölvukunnátta.

·         Hæfni í mannlegum samskiptum.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2013. Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist Jóni Eggerti Bragasyni skólameistara á netfangið joneggert@fsn.is. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfirði.

Umsóknarfrestur er til 30.maí 2013.

Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari á netfanginu joneggert@fsn.is eða í síma 8917384. Á vef skólans www.fsn.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.

Skólameistari

 
6. mars 2013 15:47

Stuðningsfjölskyldur

Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga leitar eftir stuðningsfjölskyldum á Snæfellsnesi til samstarfs við stofnunina og félagsmálanefnd Snæfellinga.
 
Viðfangsefni:  Tímabundin viðtaka og umönnun skjólstæðinga FSS, sbr. lög og reglugerðir um málefni barnarverndar, þ.m.t. úrræði á vegum aðildarsveitarfélaga FSS.
 
Umsóknir berist undirrituðum sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar.
 
Sveinn Þór Elinbergsson, forstm.
Klettsbúð 4,  360 Snæfellsbæ
s. 430 7800.; sveinn@fssf.is
 
20. september 2012 11:37

Menningarstyrkir fyrir árið 2013

Menningarráð Vesturlands auglýsir menningarstyrki fyrir árið 2013. Umsóknarfrestur rennur út 18. nóvember 2012.

meira...
 

 
15. október 2009 09:32

Skrifstofa sýslumanns Snæfellinga í Snæfellsbæ

Vegna breytinga á símakerfi embættisins  eru númer þess í Snæfellsbæ eftirfarandi:

 

Skrifstofan: 430-4126

Lögreglan: 430-4146

 

Skrifstofan að Bankastræti 1 a er opin, frá kl. 10:00 til kl. 14:00 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.

 

Upplýsingar um netföng starfsmanna er að finna á síðunum http://www.syslumenn.is og http://www.logreglan.is

 

Sýslumaður Snæfellinga

Ólafur K. Ólafsson

 

 

meira...
 

 
25. apríl 2006 14:12

Símanúmer hjá stofnunum Snæfellsbæjar

 Bæjarskrifstofa   433-6900    fax 433-6901

 

Áhaldahús                       433-6920

Ólafsvíkurhöfn                 433-6921

Hafnarstjóri                     433-6922

Rifshöfn                           433-6924

Leikskólinn Krílakot          433-6925

Leikskólinn Kríuból           433-6926

Bókasafn                        433-6928

Pakkhúsið                       433-6930

Dvalarheimilið Jaðar        433-6931

Félagsheimilið Röst          433-6932

Íþróttahús Snæfellsbæjar 433-9912

Sundlaugin í Ólafsvík       433-9910

 

 
13. júlí 2005 13:58 (36 lesendur hafa sagt álit sitt)

Viðbrögð við grun um illa meðferð dýra

Umhverfisstofnun og Embætti Yfirdýralæknis telja þörf á að skýra verklag og verkaskiptingu aðila þegar grunur leikur á illri meðferð dýra.

Fyrst og fremst er talin þörf á því að skýra hvert tilkynningum um illa meðferð dýra skuli beina svo enginn vafi leiki á því hvernig fyrstu viðbrögðum skuli háttað og að eftirfylgni og einsleit málsmeðferð sé tryggð.

 

Einnig er mikilvægt að hinn almenni borgari sé meðvitaður um hvert skuli leita við slíkar aðstæður.
 
Sérstaklega ber að veita athygli að öllum tilkynningum, óháð tegund dýrs, skal beina til viðkomandi héraðsdýralækna.
 
Verklagsreglur á pdf. formi 

meira...
 

 
13. október 2004 09:56 (35 lesendur hafa sagt álit sitt)

FÍKNIEFNASÍMINN: 800-5005

Upplýsingasíminn 800-5005 er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

meira...
 

 
13. október 2004 09:55 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Útivistartími barna

24. ágúst 2004 14:16

Opnunartímar sundlaugar

29. apríl 2004 09:49

Hesteigendur í Snæfellsbæ

1. september 2003 00:05

Til eigenda vörubíla og vinnuvéla í Snæfellsbæ

2. júní 2003 10:30 (3 lesendur hafa sagt álit sitt)

Fjölbrautarskóli Snæfellinga