![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
30. ágúst 2012 10:28 |
Nýtt fjarnám í boði hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands |
Símenntunarmiðstöð Vesturlands býður upp á fjarnám í Menntastoðum á haustönn 2012.
Nánari upplýsingar má nálgast inni á www.simenntun.is eða hafa samband við Helgu Lind Hjartardóttur verkefnisstjóra Menntastoða hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands í síma 895 1662 eða netfangið helgalind@simenntun.is
|
Menntamálaráðuneytið hefur samþykkt að framhaldsskólar geti metið námið til eininga. Námið er metið sem fullnægjandi undirbúningur undir frumgreindadeildir Keilis, Bifrastar og Háskólans í Reykjavík.
Námið er 2 annir og hefst með staðlotu föstudaginn 21.september
Umsóknarfrestur er til 17. september og námið kostar 116.000 kr.
Hægt er að sækja um styrki hjá stéttarfélögum fyrir skólagjöldum. Einnig geta atvinnuleitendur sótt um námsstyrk hjá Vinnumálastofnun vegna Menntastoða.
|