![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
30. júlí 2012 09:37 |
Heimasigur gegn Tindastóli |
|
Leikmenn Víkings virtust kólna niður við þessa töf og náðu Tindastólsmenn að setja mark á 41 mín, og var þar að verki Max Toulute. Skömmu seinna náði Arnar Sveinn Geirsson að sleppa í gegn en það var brotið á honum og Halldór Breiðfjörð gaf Edvard Berki leikmanni Tindastóls rautt spjald. Staðan var 0-1 í hálfleik og Tindastólsmenn einum manni færri. Víkingarnir komu grimmir sem Ljón í seinni hálfleikinn og voru miklu ákveðnari í öllum sínum aðgerðum. Það fór svo að þeir náðu að skora með glæsilegum skalla frá Guðmundi Steini Hafsteinssyni á 58 mín. Víkingarnir voru ekki hættir og sóttu látlaust og náðu að lokum að knýja fram sigur á 85 mín, og var þar að verki Guðmundur Steinn Hafsteinsson, sem átti einn sinn besta leik á tímabilinu. Víkingarnir gerðu það sem til þurfti og lönduðu þessum gríðarlega mikilvæga sigri í toppbaráttunni.
|