![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
|
![]() |
24. júlí 2012 08:22 |
Opna sjóstangveiðimót SjóSnæ |
|
Þess má geta að Kirkjukór Ólafsvíkur smurði nesti fyrir veiðimennina sem lið í fjáröflun fyrir Frakklandsferð í haust. Guðni Gíslason ritari SjóSnæ segir mótið hafa gengið mjög vel þrátt fyrir leiðinlegt veður. „Það er mismunandi hvernig fólki gekk. Fyrri daginn þá fengu þeir meira sem fóru út Breiðafjörðinn, en þeir sem fóru inn. Halldóra K. Unnarsdóttir var fyrsti kvenkyns skipstjórinn okkar og hún stóð sig nokkuð vel. Stundum eru menn á sama bát og með sömu veiðarfæri en gengur mis vel. Mótið gekk bara mjög vel þrátt fyrir að veðrið hefði ekki verið eins og óskaðist. Flestir bátarnir fóru vestur fyrir nes, út af Svörtuloftum og jafnvel lengra. Þar fengust stærstu fiskarnir. Allt að 18-20 kílóa þorskar. Á mótinu veiddist ekki nema einn pínulítill marhnútur og makríllinn var öðru hvoru að gera vart við sig. Sumir fengu mikið af makríl og aðrir ekki neinn, jafnvel á sama báti. Svona mót eru alltaf mikil keppni, því á opnu mótunum safnar maður stigum í Íslandsmeistarakeppninni.“
Frétt fengin af vef Skessuhorns. |