Í vor var ákveðið að setja þær á sérstakar plötur sem síðan var sett yfir filma og munu þær geymast enn betur þannig. Þessar auglýsingar innihalda liðinn tíðaranda en ma eru á þeim nöfn ræðu manna sjómannadagsins og þeirra hljómsveita sem spiluðu á sjómannadagsböllunum. Ég vil hvetja bæjarbúa til að skoða þessi listaverk og kanske kemur einhver með nöfn þeirra listamanna sem þau gerðu. Ég vil svo að lokum vekja athygli allra á þeirri frábæru starfsemi sem fram fer í Sjávarkistunni en þar er boðið upp á það besta fiskmeti úr Breiðafirðinum sem völ er á. Allt afar vel handerað og vel til haft af starfsmönnum Sjávarkistunnar. Svo að lokum vil ég þakka aðstandendum Sjávarsafnins í Ólafsvík fyrir það góða starf sem þar hefur verið unnið á liðnum árum.
Fréttin er fengin úr bæjarblaðinu Jökli. |