Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 02:35 af www.snb.is
1. maí 2012 12:38

Veiðigjald hærra en útsvar

Undanfarið hefur mikið verið rætt um frumvarp til laga um veiðigjald, flestir sem hafa sett sig inn í efni frumvarpsins eru sammála um að það hafi mjög skaðleg áhrif á útgerð í landinu. Atvinnuveganefnd Alþingis hefur óskað eftir umsögnum um frumvarpið og hefur ekki staðið á viðbrögðum, meðal þeirra sem senda nefndinni umsögn er Snæfellsbær.

 

Í umsögn Snæfellsbæjar kemur fram að sveitarfélagið hafi fengið endurskoðunarfyrirtækið Deloitte til að skoða afleiðingar frumvarpsins fyrir Snæfellsbæ. Þar kemur í ljós að veiðgjaldið af fyrirtækjum í bænum verður 817 milljónir króna á ári, til samanburðar var útsvar Snæfellsbæjar 625 milljónir árið 2010, veiðigjaldið verður þannig  473 þúsund á hvern íbúa en það er tæplega helmingur af skuldum sveitafélagsins pr. íbúa.

Deloitte skoðaði 24 útgerðarfélög í Snæfellsbæ þar sem hluti félaganna er bæði með veiðar og vinnslu og öll félögin hafa meira en 100 tonn í úthlutuðum afla. Þá kemur í ljós að af þessum 24 félögum eru 17 sem talið er að gætu ekki staðið við núverandi greiðsluskuldbindingar verði frumvarpið að lögum án breytinga.

Hjá þeim 17 félögum sem talið er að gætu ekki staðið við núverandi greiðsluskuldbindingar vinna 204. Félögin 24 greiddu laun á árinu 2010 að upphæð 2,4 milljörðum króna og voru meðallaun 7,7 milljónir. Í útsvar til bæjarins runnu 297 milljónir, eða 48% af heildarútsvarstekjum bæjarins, og ef 204 missa vinnuna þá myndi bærinn missa af tekjum upp á 193 milljónir króna, það mun þýða greiðsluþrot Snæfellsbæjar á skömmum tíma.

Í umsögninni segir einnig: „Ekki er gerður ágreiningur um nauðsyn þess að gera breytingar á núverandi fiskveiðilöggjöf til að reyna að ná meiri sátt um þessa mikilvægu auðlind okkar en sú nálgun má þó ekki vera þannig að sjávarbyggðunum um land allt nánast blæði út m.a. vegna gífurlega hárra veiðigjalda. Það að taka jafn mikla fjármuni og stefnt er að með frumvarpinu af landsbyggðinni inn í ríkissjóð hefur miklar og alvarlegar afleiðingar.“

 

Frétt úr Jökli 26.4.2012


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


aftur í yfirlit