Fundur nr. 45.
Fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar Snæfellsbæjar.
Fundur haldinn í Sparisjóð Ólafsvíkur þann 20. mars 2007.
Nefndarmenn mættir: Marinó Mortensen, Laufey Helga Árnadóttir, Gunnar Ólafur Sigmarsson, Elías Róbertsson og Þór Magnússon.
Formaður setti fundinn kl. 20:30, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskránna.
- mál.
Bréf frá bæjarstjórn.
Formaður las bréf fyrir fundarmenn frá bæjarstjórn varðandi fyrirspurn atvinnu- og ferðamálanefndar um losun á sorpi.
- mál.
Vor undir Jökli.
Nefndarmenn kynntu vinnu sína hver fyrir öðrum varðandi undirbúning fyrir dagskrá. Ræddar voru hugmyndir um frekari dagskrárliðum og skipt niður verkum.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:30.
Laufey Helga Árnadóttir, ritari. |