Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 12:47 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Íþrótta- og æskulýðsnefnd, fundur nr. 32
Dags. 27. Mars 2007

32. fundur Íþrótta- og æskulýðsnefndar, haldinn í íþróttahúsi Snæfellsbæjar, Ólafsvík

þriðjudaginn 27. mars 2007 kl 17:00.

 

Mættir voru:

                        Brynja Mjöll Ólafsdóttir

                        Hafdís Rán Brynjarsdóttir

                        Snædís Hjartardóttir

                        Sigrún Ólafsdóttir

                        Sigurður Gíslason

  

  1. Skólahreysti á landsbyggðinni.  Hvað með Snæfellsbæ?

 

Snædís sagði frá því að það væri búið að halda undankeppni hér í skólanum og velja 4 fulltrúa sem keppa í Borganesi þann 29.mars n.k.

 

  1. Skíðaaðstaða í Snæfellsbæ / skíðadagar um páskana er það eitthvað sem fólk myndi nýta sér?.

 

Rætt var um hvað hægt væri að gera til að fólk gæti nýtt sér skíðaaðstöðu í Snæfellsbæ um páskana.  Sigurði var falið að athuga málið.

 

3.Önnur mál.

 

Sigrún spurðist fyrir um styrk bæjarins til sundnámskeiðs yngri barna.  Brynja sagði að þær hefðu sótt um styrk til bæjarins og það hefði verið samþykkt.

Sigurður sagði frá því að stefnt væri að því að hafa forvarnardaga á utanverðu Snæfellsnesi dagana 16.-21.apríl.  Markmið daganna er að vekja unga sem aldna til vitundar um ýmis málefni er tengjast heilsu, hollustu, vímuvörnum, kynlífi og svo kynning fyrir íbúa á því frábæru starfi sem fer fram í félagsmiðstöðvum sveitarfélaganna.

                                             

 

Fleira ekki gjört

Fundi slitið kl 17:55

Sigrún Ólafsdóttir


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)