3. fundur þjónustuhóps aldraðra í Snæfellsbæ
Fundardagur: 18. janúar 2007, kl. 16:30
Fundarstaður: Heilsugæslustöðin í Ólafsvík
Mættir: Magnús Magnússon, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir, Sveinbjörg Eyvindsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir.
Formaður setur fundinn og gengið er til dagskrár.
Vistunarskrá
Magnús segist hafa kynnt fostöðumanni Jaðars þá stöðu mála að enginn sé á vistunarskrá (biðlista) í Snæfellsbæ að svo stöddu. Beðið sé eftir læknisfræðilegu mati á einum einstaklingi áður en hægt er að gera vistunarmat. Jafnframt tjáði hann forstöðumanni að ekki sé á valdi þjónustuhópsins að hafa áhrif á gerð vistunarskrár.
Bréf til bæjarstjórnar
Berit lagði fram bréf frá þjónustuhópnum til bæjarstjórnar þar sem óskað er eftir skriflegri stefnu hennar í öldrunarmálum Snæfellsbæjar. Var bréfið samþykkt með smávægilegum breytingum. Magnús tekur að sér að ganga frá bréfinu og koma því til viðtakanda.
Þjónustuhópnum finnst mikilvægt að fá fram slíka stefnu sem nýta má sem grunn að starfi í þágu aldraðra í Snæfellsbæ.
Önnur mál
Guðrún segir kostnaðarhlutdeild aldraðra í vistun á hjúkrunar- og dvalarheimilum og sú staðreynd að illa gengur að fá upplýsingar um hvað þeir eigi raunverulega að greiða, standi í vegi fyrir því að efnameiri aldraðir sjái vistun sem fýsilegan kost. Margir sjái sér frekar hag í því að borga fyrir heimaþjónustu fram hjá kerfinu.
Farið yfir lög um greiðsluþátttöku og Guðrún fær ljósrit af þeim til að auðvelda öldruðum aðgengi að þeim upplýsingum sem þar er að finna.
Fylgiskjöl lögð fram
Bréf til bæjarstjórnar Snæfellsbæjar – Þjónustuhópur aldraðra
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 17:30.
Fundargerð ritaði Sveinbjörg Eyvindsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Magnús Magnússon, formaður
Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Tryggvadóttir, fulltrúi aldraðra
|