183. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 27. júlí 2006 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Ólafur Rögnvaldsson
Gunnar Örn Gunnarsson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Eyþór Björnsson, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Formaður óskaði eftir leyfi til að taka tvö erindi undir afbrigðum sem lið 13 og 14. Samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1) Fundargerð 2. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar Snæfellsbæjar, dags. 26. júlí 2006.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
2) Fundargerð 36. fundar Pakkhúsnefndar, dags. 12. júlí 2006.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
3) Fundargerð 26. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar Snæfellsbæjar, dags. 11. júlí 2006.
Fundargerð samþykkt samhljóða.
4) Fundargerð 69. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 26. júní 2006.
Lögð fram til kynningar.
5) Bréf frá Íslenskum orkurannsóknum um vatnsöflun á Lýsuhóli, dags. 19. júlí 2006.
Lagt fram til kynningar.
6) Kynnt skipulag á störfum í íþróttamannvirkjum Snæfellsbæjar.
Bæjarstjóri og bæjarritari fóru yfir þær breytingar sem gerðar verða á skipulagi starfa í íþróttahúsum og sundlaug.
7) Endursendar innheimtukröfur; 0253-000513, 0253-000540, 00253-000523, 00253-000380, 00253-00339, 00253-000443
Samþykkt að afskrifa ofangreindar kröfur.
8) Bréf frá framkvæmdanefnd Sandaragleðinnar, dags. 17. júlí 2006.
Lagt fram til kynningar.
9) Bréf frá undirbúningsnefnd listahátíðar unga fólksins, Berserkur 2006, dags. 18. júlí 2006.
Lagt fram til kynningar.
10) Bréf frá Félagsmálaráðuneytinu; um upplýsingar um málefni innflytjenda, dags. 18. júlí 2006.
Bæjarritara falið að svara þessum spurningum.
11) Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, um ágóðagreiðslu 2006, dags. 10. júlí 2006.
Lagt fram til kynningar.
12) Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, um greiðslu námslauna, dags. 5. júlí 2006.
Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
13) Bréf frá Theodóru Einarsdóttur, með fyrirspurn um íbúðarhúsnæði, dags. 25. júlí 2006.
Bæjarráð áréttar að allar íbúðir í eigu Snæfellsbæjar séu til sölu. Bæjarstjórn hefur haft þá stefnu að auglýsa ekki íbúðir til sölu á meðan þær eru í útleigu. Því verði ekki tekin ákvörðun um að auglýsa tiltekna íbúð fyrr en hún losnar.
14) Bréf frá sóknarnefnd Búðasóknar, þar sem leitað er eftir styrk vegna væntanlegra framkvæmda við bílaplanið hjá kirkjunni á Búðum, dags. 25. júlí 2006.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og fól bæjarstjóra að gera tillögu til bæjarstjórnar um mögulega aðkomu að verkefninu.
15) Minnispunktar bæjarstjóra
a) Bæjarstjóri verður í sumarfríi til 24. ágúst.
b) Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu í málefni vatnsverksmiðju.
Fundi slitið kl. 13:45
|