Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 21:00 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarráð, fundur nr. 181
Dags. 27. Júní 2006

181. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn þriðjudaginn 27. júní 2006 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 12:00

 

Mættir:

                                Jón Þór Lúðvíksson                  

Kristjana Hermannsdóttir

                        Gunnar Örn Gunnarsson

                        Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

                        Eyþór Björnsson, bæjarritari

 

Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna.  Tillaga um að viðauki við samning Snæfellsbæjar og Íslindar ehf. verði tekin á dagskrá með afbrigðum.

 

Dagskrá:

1)                 Fundargerð 217. fundar Launanefndar sveitarfélaga, dags. 14. júní 2006.

Lagt fram til kynningar.

 

2)                 Bréf frá SÍS, um boðun 20. landsþings SÍS, dags. 14. júní 2006.

Lagt fram til kynningar.

 

3)                 Bréf frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, um málefni barna og unglinga á bæjarhátíðum í sumar, dags. 1. júní 2006.

Erindinu vísað til undirbúningsnefnda Færeyskra daga og Sandaragleði.

 

4)                 Bréf frá Brunavörnum Suðurnesja, um hjólað til góðs, dags. 30. maí 2006.

Ekki hægt að verða við erindinu.

 

5)                 Bréf frá Bændasamtökum Íslands, til nýkjörinna sveitarstjórnarmanna, ódags.

Lagt fram til kynningar.

 

6)                 Afrit af bréfi, frá Þingás sf lögmannsstofu, til Þórkells Geirs Högnasonar, dags. 26. maí 2006.

Lagt fram til kynningar.

 

7)                 Stefna á hendur Kristni Jónassyni, f.h. bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, dags. 14. júní 2006.

Lögmanni bæjarfélagsins falið að svara stefnunni.

 

8)                 Fundarboð, aðalfundur byggðasamlags um rekstur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 14. júní 2006.

Allir kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn eiga rétt til setu á aðalfundinum.

 

9)                 Fundarboð, framhaldsaðalfundur Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, dags. 8. júní 2006.

Bæjarstjóri fór yfir dagskrá fundarins.

 

10)             Bréf frá UKV, varðandi ósk um fjárframlag, dags. 14. júní 2006.

Erindinu vísað til atvinnu- og ferðamálanefndar til umsagnar.

 

11)             Tillaga frá bæjarstjóra, að keyptar verði tvær bifreiðar í áhaldahúsið, dags. 22. júní 2006.

Tillaga um að kaupa tvo bíla annan að fjárhæð um 500 þús. kr. og 1.700 þús.  kr. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

12)             Tillaga frá bæjarstjóra, að leitað verði eftir samstarfi um leit að heitu vatni á Lýsuhóli, dags. 22. júní 2006.

Samþykkt að fela bæjarstjóra að kanna meðal jarðeigenda áhuga á stofnun félags til að leita að heitu vatni.

 

13)             Minnisblað frá bæjarstjóra til bæjarráðs um starfsmannamál í íþróttahúsi og sundlaug, dags. 22. júní 2006.

Bæjarstjóri reifaði málið. Tillaga frá bæjarstjóra að honum verði falið að segja upp starfsfólki íþróttahúss og sundlaugar vegna skipulagsbreytinga. Í framhaldi verði íþrótta- og æskulýsnefnd falið að koma að vinnu ásamt bæjarstjóra, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, bæjarritara og launafulltrúa. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Gegn atkvæði Gunnars Arnar sem bókar að ekkert hafi breyst frá bæjarstjórnarfundi 15. júní s.l. þar sem bæjarstjórn sé að brjóta á starfsfólki með þessari ákvörðun.

 

14)             Tillaga frá bæjarfulltrúum D-listans, að starfshlutfall íþrótta- og æskulýðsfulltrúa verði aukið í 100% frá 1. september n.k., dags. 22. júní 2006.

Íþrótta- og æskulýðsnefnd falið að vinna að tillögu að starfslýsingu með bæjarstjóra. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

Bókun vegna tillagna D listans

 

Undirritaður bæjarfulltrúi J listans er sammála tillögum meirihlutans um aukningu stöðuhlutfalls íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, aukningu starfshlutfalls í félagsmiðstöð, breytingu á gjaldskrá leikskólans og aukinnar opnunar íþróttahúss Snæfellsbæjar enda samræmast þessar tillögur stefnuskrá J listans.

Undirritaður fer fram á að Félagsmálaráðuneytið verði fengið til að kanna réttmæti þessara tillagna, bæði vegna þess að þær hafa í för með sér aukin óskilgreind útgjöld og eru ekki bornar fram í bæjarstjórn.

 

Virðingarfyllst

Gunnar Örn Gunnarsson bæjarfulltrúi

 

15)             Tillaga frá bæjarfulltrúum D-listans, að starfshlutfall í félagsmiðstöðinni Afdrep verði aukið í 80% frá 1. september, dags. 22. júní 2006.

Íþrótta- og æskulýðsnefnd falið að vinna að tillögu um skipulag félagsmiðstöðvarinnar með bæjarstjóra. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

16)             Tillaga frá bæjarfulltrúum D-listans, að gjaldskrá í leikskólum Snæfellsbæjar verði breytt, dags. 22. júní 2006.

Tillaga um að elsti árgangurinn fái gjaldfrjálsa fjórar stundir á dag frá og með 1. september n.k. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

17)             Tillaga frá bæjarfulltrúum D-listans, að íþróttahúsið í Ólafsvík verði opið á laugardögum frá 1. september 2006, dags. 22. júní 2006.

Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

18)             Síðari umræða um breytingar á VI. kafla 67. gr. samþykktar um stjórn Snæfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar, gögn áður send.

Samþykkt með tveimur atkvæðum. Gegn atkvæði Gunnars Arnar.

 

Bókun vegna breytinga á bæjarmálasamþykkt

 

Ég undirritaður bæjarfulltrúi j listans mótmæli því harðlega að þessi umræða fari fram í bæjarráði en ekki í bæjarstjórn eins og segir í sveitarstjórnarlögum II. kafla gr. 21. Eftir samtal við lögmann félagsmálaráðuneytisins og lögmann samtaka sveitarfélaga sem báðir efuðust um réttmæti þess að færa þessa umræðu yfir í bæjarráð í sumarleyfi bæjarstjórnar mun ég kæra þessa afgreiðslu til Félasmálaráðuneytisins.

 

Virðingarfyllst

Gunnar Örn Gunnarsson bæjarfulltrúi

 

19)             Tölvupóstur frá félagsmálaráðuneytinu, ásamt uppkasti yfirförnu af félagsmálaráðuneytinu af samþykkt um stjórn Snæfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar.

Lagt fram athugasemdir Félagsmálaráðuneytisins. Samþykkt um stjórn Snæfellsbæjar borin upp til samþykktar með áorðnum breytingum sem gerðar hafa verið. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Gegn atkvæði Gunnars Arnar.

 

20)             Bréf frá tæknideild, vegna veggs við Brautarholt 30, dags. 22. júní 2006.

Bæjarráð fellst ekki á erindið. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

21)             Kosning aðalmanns í skólanefnd og kjörstjórn í Ólafsvík.

Tillaga um Steiney Kr. Ólafsdóttir sem fulltrúa í skólanefnd og Magnús Eiríksson í kjörstjórn í Ólafsvík. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

 

22)             Viðauki við samning Snæfellsbæjar og Íslindar ehf um vatnssölu.

Samþykkt með fyrirvara um að lögfræðingur sveitarfélagsins lesi samninginn yfir.

 

23)             Minnispunktar bæjarstjóra

A)                 Færeyskir dagar nú um helgina.

B)                 Bæjarstjóri fór yfir tillögur að malbikun gatna.

 

Fundi slitið kl. 14.32

 


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)