Fundargerð Atvinnu og ferðamálanefndar 04. apríl 2006
Fundur haldinn í Röst, Hellissandi.
Nefndarmenn mættir: Örvar Marteinsson, Svava Guðmundsdóttir og Guðni Gunnarsson.
Formaður setti fund kl.17:00, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
- mál.
Vor undir Jökli.
Nefndin telur kynningarátakið gagnlegt bæjarfélaginu og stefnir að því að halda áfram með framkvæmd þess.
Ákveðið að halda fund að viku liðinni með ferðaþjónustuaðilum að Hótel Búðum.
Rætt um dagsetningu. Vissar efasemdir nefndarmanna um að helgin 20. til 21. maí henti vegna Eurovision keppninnar sem óneitanlega tekur töluverða athygli í fjölmiðlum. Ákveðið að leita álits ferðaþjónustuaðilanna á næsta fundi.
- mál.
Blakmót mánaðarmótin apríl – maí.
Rætt um mikilvægi þess að gestir mótsins fái bestu mögulegu þjónustu á meðan á dvöl þeirra stendur. Nokkrir óánægðir gestir geta hleypt af stað slæmu orðspori fyrir þjónustuna í Snæfellsbæ, með tilheyrandi skaða. Ánægðir viðskiptavinir eru besta kynning sem við getum fengið.
Nefndin hvetur stjórnendur bæjarfélagsins til að gæta þess að veita bestu mögulegu þjónustu sem kostur er á, þar á meðal að hafa söfn opin og baðstaði.
Formanni falið að skrifa stutta grein í Jökul til brýningar þjónustuaðilum.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 18:20.
Fh. Atvinnu og ferðamálanefndar Örvar Marteinsson |