177. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 26. janúar 2006 og hófst hann á skrifstofu bæjarstjóra kl. 17:00
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Ólína Bj. Kristinsdóttir
Gunnar Örn Gunnarsson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fund og bauð fundarmenn velkomna. Að því loknu var gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Málefni Grunnskóla Snæfellsbæjar
Samþykkt að fela bæjarstjóra að ræða við skólastjóra.
2) Bréf frá Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála, dags. 13. janúar 2006, varðandi deiliskipulag fyrir miðbæ Ólafsvíkur.
Samþykkt að fela lögfræðingi bæjarins að vinna í þessu máli fyrir hönd Snæfellsbæjar.
3) Bréf frá KSÍ, dags. 10. janúar 2006, varðandi KSÍ sparkvelli.
Lagt fram til kynningar.
4) Niðurstöður könnunar um ferðamenn í Snæfellsbæ og Þjóðgarðinum Snæfellsjökli 2001.
Lagt fram til kynningar.
5) Bréf frá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, dags. 9. janúar 2006, varðandi umsóknir um námsaðstoð.
Bæjarráð telur að rétt sé að stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga þurfi að setja ákveðnar reglur um þessi mál og leggja þær síðan til samþykktar fyrir þau sveitarfélög sem standa að þjónustunni.
6) Fundargerð 64. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 12. desember 2005.
Lagt fram til kynningar.
7) Svarbréf skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar til Vagns Ingólfssonar, dags. 12. janúar 2006.
Lagt fram til kynningar.
8) Bréf frá Jónatan Sveinssyni, dags. 16. janúar 2006, ásamt matsgjörð varðandi Bjarg á Arnarstapa.
Lagt fram til kynningar.
9) Bréf frá Vinnueftirlitinu, dags. 17. janúar 2006, varðandi vinnuverndarátak í grunnskólum 2006.
Lagt fram til kynningar.
10) Bréf frá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi, dags. 13. janúar 2006, varðandi landnemaskólann.
Samþykkt að leggja í þetta verkefni allt að kr. 200.000.-
11) Bréf frá Gámaþjónustu Vesturlands, dags. 12. janúar 2006, varðandi sorphirðumál.
Lagt fram til kynningar.
12) Endursendar innheimtukröfur nr. 0253-000507 og 0253-000539
Samþykkt að afskrifa báðar kröfurnar.
13) Bréf frá Umhverfisráðuneytinu, dags. 13. janúar 2006, varðandi ráðgjafarnefnd um Þjóðgarðinn Snæfellsjökul.
Lagt fram til kynningar.
14) Bréf frá Landbúnaðarráðuneytinu, dags. 9. janúar 2006, ásamt matsskýrslu Ríkiskaupa vegna jarðarinnar Lýsuhóls í Snæfellsbæ.
Lagt fram til kynningar.
15) Bréf frá skólastjóra Tónlistarskóla Snæfellsbæjar, dags. 19. janúar 2006, varðandi aukafjárveitingu.
Aukafjárveitingin samþykkt samhljóða.
16) Bréf frá Hótel Hellnum, dags. 23. janúar 2006, varðandi lóð Fjöruhússins á Hellnum.
Samþykkt að fela lögmanni bæjarins að skoða þetta mál.
17) Bréf frá Birni Hróarssyni, ódags., varðandi styrk til vinnslu og útgáfu bókar.
Samþykkt að hafna erindinu.
18) Þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar og stofnana.
Samþykkt að senda áætlunina til síðari umræðu í bæjarstjórn.
19) Minnispunktar bæjarstjóra
Bæjarstjóri kynnti stöðuna í eftirfarandi málum:
a) Næsti bæjarstjórnarfundur verður fimmtudaginn 2. febrúar n.k.
b) Bæjarráð leggur það til við bæjarstjórn að opinn fundur til að kynna fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar 2006 verður haldinn í Félagsheimilinu á Klifi fimmtudaginn 23. febrúar. Þar verður ákveðið betur hvernig fundurinn verður mótaður.
c) Bæjarstjóri gerði grein fyrir lagfæringum á Engihlíð 20 og Engihlíð 22.
d) Verið er að ljúka við að setja teppin á Klifið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:45 |