Fundargerð Atvinnu og ferðamálanefndar
27. nóvember 2005
Fundur haldinn að Görðum, Staðarsveit.
Nefndarmenn mættir: Örvar Marteinsson, Svava Guðmundsdóttir, Sigfús Almarsson og Guðni Gunnarsson.
Formaður setti fund kl.17:30, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
- mál.
Rætt um nauðsyn áframhaldandi merkinga gönguleiða.
Ákveðið að óska eftir að 200 þúsund verði eyrnamerkt til merkinga gönguleiða við tjaldstæði í Snæfellsbæ. Óskað er eftir því að þetta fjármagn verði tryggt í yfirstandandi fjárhagsáætlunargerð.
Ítrekað skal að við uppbyggingu tjaldstæðis við Hellissand skuli gera ráð fyrir nútímalegri þjónustu við húsbíla. Aftur á móti skal einnig ítrekað að fyrir góða þjónustu komi eðlileg gjaldtaka.
- mál.
Rætt um All Senses verkefnið.
Eins og fram hefur komið hafa nefndarmenn lýst yfir vilja til að Snæfellsbær styrki verkefnið um 100 þúsund krónur.
- mál.
Önnur mál.
Rætt um líkur á því að rekstri Lýsuhólsskóla verði hætt.
Atvinnu og ferðamálanefnd lýsir yfir töluverðum áhyggjum vegna þessa enda myndi það skaða atvinnumál sunnan Fróðárheiðar gríðarlega. Nauðsynlegt er að athuga alla aðra valkosti til að halda skólanum gangandi, m.a. að bjóða í kennslu barna frá nærliggjandi hreppum. Ekki er ólíklegt að þannig mætti ná hagræðingu fyrir alla aðila.
Ekki fleira rætt.
Þakkað fyrir rausnarlegar viðtökur húsfreyju og fundi slitið kl.19:00
F.h. Atvinnu og ferðamálanefndar
Örvar Marteinsson |