Fundargerð
Eigendafundar Félagsheimilisins Snæfells á Arnarstapa
Formaður húsnefndar setti fundinn. Stakk hann upp á Kristni Jónassyni sem fundarstjóra. Fundarstjóri fór yfir dagskrá fundarins. Fyrsti liður aðalfundar er kjör oddamanns húsnefndar. Kristinn Jónasson lýsti því að U.M.F.T hefði ekki óskað eftir að Pétur Pétursson yrði oddamaður og stakk upp á sjálfum sér. Ritari húsnefndar stakk upp á Bjarna Einarssyni á Tröðum. Fór fram atkvæðagreiðsla og fékk Kristinn Jónasson fimm atkvæði og Bjarni Einarsson fjögur. Ritari fundar Kristinn Einarsson gerði athugasemd við kosningu þar sem hann taldi að atkvæði Péturs Péturssonar væri ekki gilt vegna þess að hann hefði ekki verið kjörinn af U.M.F.T.
Kristinn Jónasson gerir þá athugasemd að þar sem að stjórn U.M.F.T. hafi ekki gert athugasemd við skipan Péturs Péturssonar á sínum tíma og telur Kristinn Jónasson að Pétur sé fullgildur á fundinum.
Þá var farið að ræða ársreikninga. Kristinn Jónasson útskýrði að lítið hefði innheimst af leigu frá leigutaka og ekki hefði verið gengið hart eftir því að innheimta leigu af hálfu bæjarins vegna bágrar fjárhagsstöðu Snjófells. Hann taldi að upphæð þeirra vinnu sem að leigutaki hefði innt af hendi væri e.t.v. á bilinu 200-500 þúsund. Einnig hefði leigutaki greitt þá upphæð sem fram kæmi í ársreikningum í vélavinnu fyrir Snæfellsbæ.
Nokkur umræður urðu um það misræmi sem kemur fram á milli ársreikninga og leigusamnings. Það kom fram í máli Kristins Jónassonar að það sé skylda sveitarfélags að tryggja sjálft húseignir sínar og því hefði ákvæði leigusamnings ekki staðist, en þar var kveðið á um að leigutaki greiddi tryggingar. Að loknum umræðum um ársreikninga voru þeir bornir undir atkvæði fundar og samþykktir.
Fundarstjóri tók síðan til við að ræða fjárhagsáætlun fyrir 2005. Formaður húsnefndar Eyþór Björnsson útskýrði fjárhagsáætlun byggða á fyrri reynslu. Fjárhagsáætlun var samþykkt samhljóða.
Gert var lítils háttar fundarhlé.
Þá var komið að því að ræða ályktanir aðalfundar. Kristinn Jónasson gerði stuttlega grein fyrir tillögu bæjarstjórnar. Ólína Gunnlaugsdóttir las síðan upp ályktun stjórnar U.M.F.T. Fundarstjóri reifaði þetta lítillega og lagði til að tillaga bæjarstjórnar yrði samþykkt. Ekki væri þar með sagt að sala færi fram strax og alla möguleika mætti ræða. Í sama streng tók Pétur Jóhannsson. Ólína mæltist til þess að allir möguleikar yrðu ræddir áður en ákvarðanir yrðu teknar.
Líflegar umræður urðu um þetta mál út frá ýmsum sjónarhornum. Kristinn Jónasson hélt fram sjónarmiðum Snæfellsbæjar varðandi það að selja húsið. Kristinn Einarsson og Ólína Gunnlaugsdóttir héldu fram sjónarmiðum U.M.F.T. varðandi það að halda húsinu sem félagsheimili. Á endanum komu fundarmenn sér saman um sameiginlega tillögu.
Eftirfarandi tillaga var borin fram af Kristni Jónassyni, bæjarstjóra Snæfellsbæjar:
,,Bæjarstjórn Snæfellsbæjar gerir þá tillög til aðalfundar að eign félagsins verði auglýst til sölu. Ef viðunandi verð fáist verði félaginu slitið og eignum þess skipt á milli eignaraðila.”
Eftirfarandi breytingatillaga kom fram:
,,Ákvörðun um töku tilboðs skal gerð á eigendafundi sem boðaður skal með a.m.k. 48 klst. fyrirvara.”
Þessar tillögur voru bornar undir atkvæði og voru samþykktar samhljóða.
Fundargerð var lesin upp og samþykkt.
Fundur þessi var haldinn í Félagsheimilinu Röst 10. febrúar 2005 frá kl. 17:00 – 20:00.
Viðstaddir rituðu í fundarlok nöfn sín undir fundargerð.
Fleira ekki fyrir tekið og fundi slitið.
Kristinn Jón Einarsson, ritari
Kristinn Jónasson
Hjörtur Sigurðsson
Pétur S. Jóhannsson
Eyþór Björnsson
Þyri Sölva
Ólína Gunnlaugsdóttir
Pétur Pétursson
Aðalsteinn Snæbjörnsson |