Fundur var haldin í skólanefnd Tónlistarskólans í Snæfellsbæ í húsnæði Tónlistarskólans í Ólafsvík þann 10. maí 2004 kl. 20:00
Mættir: Steinunn D. Ingibjörnsdóttir, Anna Höskuldsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Kay Wiggs og Jóhann Þór Baldursson.
1) Auglýsa þarf eftir tónlistarkennara við tónlistarskólann næsta haust í 100% stöðu.
2) Rætt var um mál tónlistarskólans næsta haust. Skólastjóri við tónlistarskólann hefur ítrekað vð skólastjóra grunnskólanna um að tónlistarkennsla verði með því sniði að nemendur verði teknir úr kennslustund til að fara í tónlistartíma.
3) Jóhann kynnti fyrir nefndinni samstarf sem hann er að fara í við tölvufyrirtæki. Samstarfið felst í geymslu efnis í myndformi og hljóði.
4) Stigspróf eru að leggjast af og í stað þeirra kemur áfangapróf sem eru innan skólans.
Fleira var ekki rætt á fundi.
Steinunn D. Ingibjörnsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
Anna Höskuldardóttir
Kay Wiggs
Jóhann Þór Baldursson |