Fundargerð Atvinnu og ferðamálanefndar
28. febrúar 2004
Fundur haldinn að Görðum í Staðarsveit kl. 16:00.
Mætt voru: Örvar Marteinsson, Svava Guðmundsdóttir og Þórarinn Steingrímsson
Formaður setti fund kl. 16:00, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
1. mál. Atvinnumálastefna.
Atvinnu og ferðamálanefnd hitti aðila frá Atvinnuráðgjöf Vesturlands, þá Ólaf Sveinsson og Vífil Karlsson á fundi fyrir jól. Þeir eru að undirbúa sig fyrir fund sem átti að vera í febrúar en virðist eitthvað ætla að dragast. Þar stendur til að koma fram með vinnuferli varðandi atvinnumálastefnuna. Dagsetning er enn óákveðin.
2. mál
Atvinnu og ferðamálanefnd telur það til bóta að fá vissa fjárveitingu árlega til styrkja til eflingar og hvatningar í ferða og atvinnumálum.
Nefndin staðfestir styrkveitingu til Reynis Ingibjartssonar að upphæð kr. 150. 000,-
3. mál
Atvinnu og ferðamálanefnd óskar eftir að fá unglingavinnuna í afmarkaðan tíma til að vinna við merkingar á gönguleiðum í samráði við nefndina og kunnuga aðila.
Lagt er til að 1 vika á sumri verði helguð merkingum gönguleiða.
4. mál. Bréf frá H.Í. lagt fram til umfjöllunar. Atvinnu og ferðamálanefnd vonast til að atvinnumál fatlaðra fái sinn sess í atvinnumálastefnu Snæfellsbæjar.
5. mál. Vor undir Jökli.
Stefnt skal á að halda hátíðina dagana 21 – 23 mai.
Samþykkt að halda skipulagsfund í mars á Hótel Búðum með þeim aðilum sem að hátíðinni vilja koma.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 18:30
|