Fundargerð Atvinnu- og ferðamálanefndar
15. nóvember 2003
Fundur haldinn að Görðum í Staðarsveit kl. 15:30.
Mætt voru: Örvar Marteinsson, Svava Guðmundsdóttir og Þórarinn Steingrímsson
Formaður setti fund kl. 15:30, bauð fundarmenn velkomna og hóf dagskrána.
1. mál.
Atvinnustefna Snæfellsbæjar
Rætt var um að velja verkefnisstjórn yfir atvinnumálastefnuvinnuna og hverjir yrðu valdir í þá stjórn. Einnig var rætt um Vor undir Jökli en það þarf að huga að því verkefni. Ákveðið að stefna að fundi með öllum þeim aðilum sem að verkefninu vilja koma í mars. Æskilegt er að hagsmunaaðilar utan nefndarinnar komi að skipulagningunni með nefndinni.
2. mál.
Tekið fyrir bréf frá Ægisklúbbnum til umsagnar hjá nefndinni.
A. og F. nefnd beinir því til bæjarstjórnar að nauðsynlegt sé að eitthvert eitt tjaldsvæði í bæjarfélaginu bjóði upp á góða þjónustu við tjaldvagna, hjólhýsa og húsbílafólk en þess jafnframt gætt að fólk borgi fyrir þá þjónustu sem veitt er. A. og F. nefnd vill benda á að sólarrafhlöður eru afar góð og umhverfisvæn lausn fyrir þá sem þurfa rafmagn í útileguna.
3. mál
Umræður um þau mál sem fara þarf með á bæjarráðsfund.
4. mál
A. og F. nefnd tilnefnir Sigrúnu Guðmundsdóttur, Ragnhildi Sigurðardóttur og Hauk Þórðarson í vinnuhóp sem falið er að sækja um styrk til Ferðamálaráðs til úrbóta á Lýsuhólslaug og standa að skipulagningu og framkvæmd með bæjartæknifræðingi.
5. mál
A. og F. nefnd beinir til bæjarritara að sækja um styrk til Ferðamálaráðs til lagningar gönguleiða og endurbóta á gönguleiðum.
Önnur mál:
Atvinnu og ferðamálanefnd fagnar uppbyggingu og aukinni þjónustu hjá Sólarsporti.
Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl 17:10
|