3. fundur bygginganefndar íbúða eldri borgara, fundurinn í dag er með öðru sniði - farið verður í ferð og hús skoðuð. Ferðin var farin 05.02.2004 kl. 11:00 frá Litabúðinni í Ólafsvík.
Mætt voru:
Formaður byggingarnefndar Sigurjón Bjarnason, Sævar Þórjónsson, Jensína Guðmundsdóttir og Kristinn Jón Friðþjófsson.
Smári Björnsson byggingafulltrúi sem einnig ritaði fundargerð.
Einn nefndarmaður ætlaði að hitta okkur í ferðinni, Hjálmar Kristjánsson.
Dagskrá:
1. Almen ferðalýsing:
Farið var frá Litabúðinni í Ólafsvík kl. 11:00 fimmtudaginn 05. febrúar 2004. Var Sævar Þórjónsson búinn að bjóðast til að keyra okkur og skoða svipuð hús og rætt hefur verið um, því var Sævar bílstjóri. Fyrsti áfangastaður í ferð okkar var Grundarfjörður og áttum við stefnumót við tvo aðila úr byggingarnefnd eldriborgarahúsanna í Grundarfirði. Þeir í Grundarfirði hafa nú þegar reist 7 raðhús við Hrannarstíg 28 – 40 í Grundarfirði og skoðuðum við þau hús. Eitt af húsunum er nú þegar afhent en annað var tilbúið til afhendingar og skoðuðum við það jafnt og önnur hús á svæðinu.
2. Lýsing á Húsum í Grundarfirði:
Byrjað var á byggingu 7 raðhúsa í Grundarfirði um mitt síðasta ár (2003). Ákveðið var að byggja tvær stærðir af íbúðum, en allar íbúðirnar eru með bílskúr. Önnur gerðin af íbúðum er þriggja herbergja 106 m2, og var byggingarkostnaður við þá byggingu ca. 138.00,- kr. pr. m2. Hin stærðin er 89,5 m2. Í henni eru bara tvö herbergi og var byggingarkostnaður við hana á u.þ.b. 12.300,- kr pr. m2. Byggingarlýsing á húsunum er eftirfarandi: húsin eru einlyft steinsteypt raðhús með risþaki, einangruð og klædd að utan með áli. Bílageymslur eru einangraðar og húðaðar innanvert. Þak er utanvert klætt bárustáli ofan á pappa og borðaklæðning, en innri klæðningar eru hefðbundnar plötuklæðningar.
Tvöfalt K-gler er í öllum gluggum.
Veggur milli sambyggðra húsa er REI-90 veggur er gengur upp að ystu þakklæðningu.
Hita- og vatnslagnir eru ídregnar rör í rör lagnir að mestu en annars utanáliggjandi.
Brunavarnir og klæðningar eru í samræmi við ákvæði Brunamálasamþykktar. Einangrun uppfyllir öll ákvæði byggingarreglugerðar.
Eftir að húsin voru skoðuð og rætt hafði verði við þá aðila sem voru á svæðinu var snæddur hádegisverður í Grundarfirði. Eftir fund var svo haldið áleiðis til Borgarnes.
3. Áfangastaður 2 Borgarnes:
Haldið var inní óveðrið frá Grundarfirði til Borgarness, Sævar stýrði ferðinni vel og kom okkur í Borgarnes upp úr kl. 14:00. Þar hitti svo Hjálmar okkur. Í Borgarnesi fórum við að skoða íbúðir fyrir aldraða og þjónustubyggingu fyrir dvalarheimilið í Borgarnesi. Þar var Sævar búinn að undirbúa fund við einn íbúa hússins. Þetta húsnæði í Borgarnesi er sex hæða blokk, með sex íbúðum á hæð, samkomusal á efstu hæð og vinnuaðstöðu fyrir eldriborgar á jarðhæð. Er blokkin tengd heilsugæslustöð Borgarness sem er mjög góður kostur. Blokkin er með 6 bílageymslum í kjallara hússins. Það sást greinilega þegar komið var á staðinn að þarna var um að ræða töluvert eldra fólk en t.d. er að kaupa íbúðir í raðhúsunum í Grundarfirði. Við ræddum við eiganda einnar íbúðarinnar í blokkinni og hann sýndi okkur allt húsið sem lítur mjög vel út og hentar mjög vel á svona stað.
Að lokinni skoðun á íbúðum var farið á efstu hæð blokkarinnar þar sem stór salur er og geta íbúar blokkarinnar nýtt sér hann til ýmissa nota. Þar settumst við niður, drukkum kaffi og ræddum ýmis mál varðandi blokkina og hentugleika hennar. Sáum við gang sem er á milli blokkar og heilsugæslu sem er mjög sniðugt en gæti eflaust aldrei gengið hjá okkur enda er spurningin hjá okkur að byggja á þremur stöðum en ekki að samræma þetta á einn stað eins og gert er í Borgarnesi. Því við hliðina á blokkinni er líka raðhús fyrir eldriborgara sem vilja vera svolítið meira útaf fyrir sig.
Eftir góðar móttökur í Borgarnesi var svo haldið heim á leið í snjóstormi og sá Sævar til þess að allir skiluðu sér heim á skikkanlegum tíma. Vill fundarritari þakka Sævari fyrir keyrsluna í þessari ferð og öllum öðrum fyrir áhugaverða ferð.
4. Næsti fundur:
Ekki hefur verið ákveðið með næsta fund. Stefnt verður á að halda opinn íbúafund í lok febrúar eða í byrjun mars. |