Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 22:30 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Húsnæðisnefnd eldri borgara, fundur nr. 1
Dags. 13. Janúar 2004

1. fundur byggingarnefndar vegna íbúða eldriborgara, haldinn á Bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar þriðjudaginn 13. janúar 2004, kl. 17:00.

 

Mætt voru:

Formaður byggingarnefndar Sigurjón Bjarnason,  Sævar Þórjónsson,  Jensína Guðmundsdóttir.

Smári Björnsson byggingafulltrúi sem einnig ritaði fundargerð

Tveir nefndarmenn mættu ekki, þeir Hjálmar Kristjánsson og Kristinn Jón Friðþjófsson.

 

Fundarstjóri var Sigurjón Bjarnason.  Fundarstjóri setti fund og bauð nefndarmenn velkomna.

 

                                                Dagskrá:

1.      Almennt:

Fundarstjóri ákvað að fundurinn yrði á léttum nót til að byrja með og frekar óformlegur.

 

2.      Sævar Þórjónsson tók til máls:

Sævar kynnti tillögu frá Borgarnesi sem hann fékk þaðan.  Um er að ræða blokkar byggingu sem var byggð í Borgarnesi um ´94.  Blokkin er 4 hæða með 6 íbúðum á hæð.  Kjallari er á húsinu með bílgeymslum og í risi er samkomusalur. Samkomusalurinn er ætlaður öllum íbúum blokkarinnar fyrir ýmis tilefni.  Blokkin er tengd við Dvalarheimilið sem er svo tengd við Heilsugæslu Borgarnes, svo þetta myndar kjarna og auðveldar öllum íbúum umgang milli þessara bygginga.

Helstu kostir við þessa byggingu eru:

Ø      Sameiginlega rýmið í blokkinni,

Ø      Tenging við aðrar byggingar.

Ø      Mikið útsýni, strax á annarri hæð.

Ø      Það er útsýni í 3 áttir.

Ø      Bílageymsla undir blokk, innangengt.

Ø      Svalir og enginn garður til að hugsa um.

 

Í blokkinni eru íbúðirnar 3ja herbergja og 2ja herbergja.  Á hæð eru 4 tveggja herbergja og 2 þriggja herbergja.

Einnig hafa Borgnesingar byggt um raðhús fyrir eldriborgara í nágrenni blokkarinar, svo öll hús eldriborgara eru á svipuðu svæði.

Ákveðið var að leita eftir frekari upplýsingu frá Borgarnesi um raðhús og einnig ætlar Sævar að hafa samband við aðila sem hann þekkir og eru að fara á stað með svipaðar byggingar á þessu svæði.

Kostnaðurinn við íbúð í þessari blokk árið ´94 var ca. 8,2 milljónir fyrir ca. 90 m2 íbúð.

 

3.      Könnun:

Gerð hefur verið könnun á húsnæðisþörf eldriborgara í Snæfellsbæ fyrir nokkrum árum.  Smári tók að sér að finna þessa könnun og koma með hana á næsta fund. 

 

4.      Hvar í Snæfellsbæ er best  að byggja svona húsnæði :

Jensína tók til máls og sagði þörfina fyrir að byggja svona húsnæði á Hellisandi þá sömu og í Ólafsvík og lagði til að Hellisandur væri með frá upphafi í umræðunni um staðsetningu húsanna.  T.d. þá kæmi gamli malarvöllurinn við Útnesveg til greina að hennar mati sem góður staður fyrir húsnæði eldriborgara, einnig kom Selhólssvæðið upp í umræðunni um staðsetning.  Fundarmenn voru sammála um að bæði Hellissandur og Ólafsvík kæmu til greina fyrir húsnæði og það virðist í fljótu bragði vera þörf fyrir svona húsnæði á báðum stöðu.

Í Ólafsvík þá kæmi helst til greina að byggja báðum megin við Engihlíð 18, Sævar sagði að á horninu austan megin við Engihlíð 18 væri fínn staður fyrir blokk.  Hinsvegar verður að taka tillit til þeirra rannsókna sem eru nú í gangi á snjóflóðahættu á þessu svæði.  Sigurjón benti á að vestan megin við Engihlíð 18 væri fínn staður fyrir raðhúsabyggð, það þyrfti að skoða þann möguleika til hlítar.

 

5.      Kostnaður á m2:

Lagt var til að kostnaður við að byggja svona húsnæði yrði kannaður.  Munurinn á því að byggja blokk og að byggja raðhús, hver hann væri í kostnaði.  Smári var fenginn til að kanna muninn á kostnaði við að byggja þessa gerð af húsnæði.

Hver íbúð má aldrei fara yfir 10 – 12 milljónir.  Stærðir á íbúðum mega ekki fara yfir 120 m2, þ.e.a.s. íbúð með bílskúr en annars eru 80 m2 heppileg stærð.

Áætla má samkvæmt nýjustu tölum að m2 fyrir fjölbýli sé ca 120 – 140 þúsund kr.  og fyrir raðhús sé ca. 150 þúsund kr.

 

6.      Hönnun:

Þegar út í hönnun kemur þá verður að hanna húsið út frá svæðinu sem það á að standa á.. Eins og t.d. blokk yrði falla vel inní umhverfið.

 

7.      Jaðar:

Svona byggingar myndu losa eitthvað um álagið sem er á Dvalarheimilinu Jaðri í Ólafsvík í dag.  Þetta myndi líka frekar halda í fólkið sem er hér á svæðinu og hugsanlega fá hingað fólk aftur, sem hefur flutt burt vegna húsnæðisvandamála.

 

8.      Kynning:

Hvað sem svo verður gert í þessu máli þá er það víst að það verður aldrei farið í gang með þessar framkvæmdir nema með góðri kynningu fyrst meðal íbúa Snæfellsbæjar.

 

9.      Skoðun:

Ákvörðun hefur verið tekin að fara í skoðunarferð bæði til Grundarfjarðar og í Borgarnes til að skoða svipuð hús og verið er að spá í. Sævar hefur boðist til að keyra okkur í þessari ferð og vera leiðsögumaður.

 

10.  Næsti fundur:

Ákveðið var að halda næsta funda á sama stað, þann 27.01.04. kl 17:00

 

Fleira ekki gert.  Fundargerð lesin upp og staðfest.  Fundi slitið kl. 18:15.                     


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)