Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 05:03 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Þjónustuhópur aldraðra, fundur nr. 9
Dags. 5. Nóvember 2003

Fundur í öldrunarnefnd – þjónustuhópi aldraðra.

 

Fundarstaður: Heilsugæslustöðin Ólafsvík

Fundardagur: 05.11.2003 kl. 16:00.

 

Mættir: Margrét Vigfúsdóttir, Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Gunda Beck-Nygaard og Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir.

 

 

Margrét færir þær fréttir úr Heilbrigðis- og tryggingarmálaráðuneytinu að nú muni vistunarmöt bráðlega verða færð rafrænt og notað til þess sama kerfi og við RIA-matið sem metur færni og heilbrigði aldraðra á stofnunum. Er ekki alveg ljóst hvernig ætlast er til að þetta fari fram en eini staðurinn sem tengdur er við þetta kerfi hér í Snæfellsbæ er Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar. Fylgir því talsverður kostnaður að setja upp slíka tengingu og ekki talið skynsamlegt að koma henni á fyrir nokkur vistunarmöt á ári.  Mun Margrét kanna þetta nánar.

 

Þrjár umsóknir um vistunarmöt lágu fyrir fundinum og voru þær allar afgreiddar með umsókn um rými á Jaðri.

  

Fundi slitið kl. 17:15. Fundargerð ritaði Sveinbjörg Eyvindsdóttir.


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)