Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
|
Félagsmálanefnd Snæfellinga, fundur nr. 31 |
| Dags. 6. Maí 2003 |
|
|
|
31. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga
var haldinn á Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga á Hellissandi, þriðjudaginn 6. maí 2003 kl. 16:30 – 18:00
Á fundinn mættu; Baldvin Leifur Ívarsson, Guðrún Marta Ársælsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Júníana B. Óttarsdóttir og Matthildur S. Guðmundsdóttir auk Kára Eiríkssonar félagsráðgjafa og Sigþrúðar Guðmundsdóttur félagsmálastjóra.
Fundargerð.
Reglur um garðslátt fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja.
Nefndin samþykkti nýjar reglur um garðslátt fyrir ellilífeyrisþega og öryrkja. Einkum er um að ræða breytingar á vinnulagi og nánari ákvæði um ákveðna liði en ekki á innihaldi reglnanna sem slíkra.
Umræða um félagslega heimaþjónustu.
Félagsráðgjafi hefur gert þjónustumat hjá notendum félagslegrar heimaþjónustu í Stykkishólmi og haldið, ásamt forstöðumanni dvalarheimilisins, fund með starfsmönnum. Einnig hefur verið gefinn út bæklingur fyrir starfsmenn og notendur þjónustunnar í Stykkishólmi. Félagsráðgjafi hefur hafið sama ferli í Grundarfirði og ráðgert er að hann endi í Snæfellsbæ. Umræður um félagslega heimaþjónustu, reglurnar og áframhaldandi samræmingu þjónustunar.
Lögð fram vinnuáætlun vegna málefna íbúa af erlendum uppruna.
Umræður um framkvæmd áætlunarinnar, hvaða aðilar væri æskilegt að kæmu að framkvæmd hennar og með hvaða hætti.
Lögð fram vinnuáætlun varðandi forvarnastefnu.
Umræður um framkvæmd áætlunarinnar, hvaða aðilar væri æskilegt að kæmu að framkvæmd hennar og með hvaða hætti.
Trúnaðarmál skv. trúnaðarmálabók.
Næsti fundur ákveðinn í Grundarfirði, miðvikudaginn 11. júní kl. 16:30.
Fundi slitið.
|
Til baka
|