Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 01:45 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Félagsmálanefnd Snæfellinga, fundur nr. 29
Dags. 25. Febrúar 2003


29. fundur félagsmálanefndar Snæfellinga

 

var haldinn á skrifstofu Stykkishólmsbæjar, þriðjudaginn 25. febrúar 2003 kl. 16:30 – 18:00

 

Á fundinn mættu; Baldvin Leifur Ívarsson, Guðrún Marta Ársælsdóttir, Helga Sveinsdóttir, Júníana B. Óttarsdóttir og Matthildur S. Guðmundsdóttir auk Kára Eiríkssonar félagsráðgjafa og Sigþrúðar Guðmundsdóttur félagsmálastjóra.

 

Fundargerð.

 

Hlutverk félagsþjónustunnar og annarra aðila varðandi móttöku fólks af erlendum uppruna.  Umræður og ákveðið að vinna að tillögum um stefnu í málefnum íbúa af erlendum uppruna og móttöku þeirra.  Félagsmálastjóri vinnur drög að þessum tillögum.

 

Hlutverk félagsþjónustunefndar varðandi forvarnir.

Nefndin hefur áhyggjur af fjölgun mála þar sem fíkniefni koma við sögu. Umræður um hlutverk nefndarinnar varðandi forvarnir.  Ákveðið að nefndin geri tillögur um vinnu sveitarfélaganna að forvarnamálum.  Félagsmálastjóri vinnur drög að þessum tillögum. 

 

Trúnaðarmál skv. trúnaðarmálabók.

 

Næsti fundur ákveðinn á Skrifstofu Grundarfjarðarbæjar, 1. apríl 2003, kl. 16:30.

 

Fundi slitið.


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)