Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 04:40 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Þjónustuhópur aldraðra, fundur nr. 6
Dags. 25. Mars 2003

Fundur í öldrunarnefnd – þjónustuhópi aldraðra

 

Fundarstaður: Heilsugæslustöðin Ólafsvík

Fundardagur: 25.03.03 kl. 16.15

 

 

Mættir: Margrét Vigfúsdóttir, Fanný Berit Sveinbjörnsdóttir, Sveinbjörg Eyvindsdóttir, Gunda Beck Nygaard og Guðrún Tryggvadóttir.

 

 

Formaður las svar stjórnar Dvalarheimilisins Jaðars við bréfi nefndarinnar frá því í desember síðastliðnum. Er afrit af bréfinu birt í fundargerðarbók nefndarinnar. Lýsir nefndin yfir ánægju með undirtektir við samstarfi og mun fúslega verða við beiðni um eintak af stefnu sinni til kynningar fyrir stjórn, forstöðumann og starfsfólk dvalarheimilisins.

 

Gunda segir nýja tilhögun læknisþjónustu ganga vel og að allir séu ánægðir með hana.

 

Berit las upp bréf til bæjarstjórnar Snæfellsbæjar þar sem hún er beðin að taka þátt í og styðja verkefnið “heilsueflandi heimsóknir til aldraða” með þrjú hundruð þúsund króna styrk. Verður bréfið sent af stað á morgun.

 

Vegna misskilnings hefur dregist að senda bæjarstjórn stefnu öldrunarnefndar og verður undinn bráður bugur að því. Var jafnframt ákveðið að senda stutt bréf með til skýringar. 

 

Fundi slitið kl. 17.00. Fundargerð ritaði Sveinbjörg Eyvindsdóttir.

 


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)