Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 05:43 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ, fundur nr. 2
Dags. 16. September 2002
Fundur haldinn í skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ í húsnæði Tónlistarskólans í Ólafsvík, mánudaginn 16. september 2002 kl. 20:00

 

Mættir:
Sigrún H. Guðmundsdóttir
Anna Höskuldsdóttir
Steinunn Dröfn Ingibjörnsdóttir
Jóhann Þór Baldursson
Kay Wiggs
 
Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
 
1)  Kay Wiggs lagði fram skóladagatal Tónlistarskólans á Hellissandi fyrir haust- og vorönn 2002-2003.
 
2)  Jóhann Þór Baldursson lagði fram skóladagatal Tónlistarskólans í Ólafsvík fyrir haust- og vorönn 2002-2003
 
3)  Í Tónlistarskólanum á Hellissandi eru 35 nemendur. 
 
4)  Í Tónlistarskóla Ólafsvíkur eru 99 nemendur.  Af þeim eru 23 á Lýsuhóli og 76 í Ólafsvík.  10 einstaklingar eru á biðlista.
 
5)  Vegna fjölgunar á nemendum telur nefndin mikilvægt að tími tónlistarkennara sé nýttur betur.  Það var t.d. komið með þá uppástungu að taka nemendur í 1-5 bekk úr kennslu til að fara í Tónlistarskólann.  Rætt var um að skrifa bréf til bæjaryfirvalda til aðóska eftir því.
 
6)  Ákveðið var að fundað yrði fyrsta mánudag hvers mánaðar.
 
7)  Rætt var um kennslukvótaaukningu.  Samkvæmt nýjum samningum hjá tónlistarkennurum þurfa skólastjórar tónlistarskólanna að sækja um kennslukvótaaukningu til bæjaryfirvalda og stendur Jóhann Þór Baldursson í viðræðum við bæjarstjóra um þá aukningu.  Bæjaryfirvöld vilja fresta ákvörðunartöku um hvort veita eigi þessa kennslukvótaaukningu til áramóta.  Ef að þessi kennslukvótaaukning nær ekki í gegn lýkur tónlistarskólum Snæfellsbæjar í kringum páskaleytið í stað þess að ljúka í lok maí.  Því voru skóladagatöl kynnt með fyrirvara um að þessi kennslukvótaaukning næði fram að ganga.
 
8)  Jóhann Þór Baldursson ræddi um það að búið væri að ganga frá niðurgreiðslu skólagjalda þeirra nemenda sem urðu fyrir röskun á námi við Tónlistarskólann vegna fjarveru eins tónlistarkennarans fyrr í vetur.
 
Fleira ekki gert og fundi slitið
 
Sigrún H. Guðmundsdóttir (sign)
Anna Höskuldsdóttir (sign)
Steinunn Dröfn Ingibjörnsdóttir(sign) 
Kay Wiggs (sign)
Jóhann Þór Baldursson (sign)

Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)