22.fundur félagsmálanefndar Snæfellinga - fundargerð Dagsetning; miðvikudagur 28. ágúst 2002 Tími; kl.16:30 – 19:00. Staður; Skrifstofa Grundarfjarðarbæjar Mættir; Baldvin Leifur Ívarsson, Guðrún Marta Ársælsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Matthildur S. Guðmundsdóttir og Sigrún Baldursdóttir auk Sigþrúðar Guðmundsdóttur og Kára Eiríkssonar starfsmanna Félasgs- og skólaþjónustu. Helga Sveinsdóttir og Júníana Bj. Óttarsdóttir boðuðu forföll og sendu varamenn. 1. Sigþrúður þakkar þeim nefndarmönnum sem tóku að sér bakvaktir vegna barnaverndarmála í júlí fyrir aðstoðina. 2. Starfsreglur barnaverndarnefndar. Sigþrúður dreifir til fundarmanna drögum að nýjum starfsreglum félagsmálanefndar þar stefnt er að enn faglegri vinnubrögðum í barnaverndarstarfi nefndarinnar. Farið er yfir drögin sem nefndarmenn taka með sér heim til að kynna sér betur. Nefndarmenn beðnir að koma athugasemdum til Sigþrúðar fyrir næsta fund. 3. Endurskoðun fundarskapa og stað- og tímasetning funda. Sigþrúður dreifir endurskoðuðum fundarsköpum . Ákveðið að fundir nefndarinnar verði hér eftir haldnir til skiptis á Félags- og skólaþjónustu og á bæjarskrifstofunum í Stykkishólmi og Grundarfirði. Vegna forfalla tveggja aðalmanna var ákveðið að geyma ákvarðanatöku um fasta fundartíma til næsta fundar. 4. Trúnaðarmál sbr. trúnaðarmálabók. 5. Næsti fundur ákveðinn í Stykkishólmi miðvikudaginn 25. september kl. 16:30. 6. Fundi slitið. |