Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
|
Umhverfis- og náttúruverndarnefnd, fundur nr. 16 |
| Dags. 22. Maí 2002 |
|
|
|
16. fundur umhverfis- og náttúruverndarnefndar haldinn á Hótel Hellissandi þann 22. maí 2002 Fundinn sátu: Skúli Alexandersson Guðrún Gísladóttir Jenný Guðmundsdóttir Sigurlaug Jóhannsdóttir Fundarefni: 1. Erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar. a) Bréf frá Náttúruvernd ríkisins um stækkun friðlands á Búðum. Nefndin mælir með því að friðlandið verði stækkað í samræmi við tillögu Náttúruverndar ríkisins. b) Bréf frá Victori H. Sveinssyni, afrit af bréfi til Landbúnaðarráðuneytisins. Lagt fram til kynningar. c) Bréf Vegagerðarinnar til sveitarstjórna um frágang á námusvæðum. Nefndin fagnar tillögum þeim sem fram koma í bréfi Vegagerðarinnar. 2. Nefndarmenn þökkuðu hver öðrum fyrir samstarfið á liðnum fjórum árum. Fleira ekki gert. Fundi slitið. Skúli Alexandersson (sign) Jenný Guðmundsdóttir (sign) Guðrún Gísladóttir (sign) Sigurlaug Jóhannsdóttir (sign) |
Til baka
|