Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 23:49 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Íþrótta- og æskulýðsnefnd, fundur nr. 61
Dags. 15. Maí 2012

61. Fundur Íþrótta- og æskulýðsnefndar haldin í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar þriðjudaginn  15. maí kl:17:00

Á fundinn mættu:

Brynja Mjöll Ólafsdóttir

Elva Ösp Magnúsdóttir

June Beverly Scholtz

Snædís Hjartardóttir

Sigrún Ólafsdóttir

 

1.      Hátíðarhöld 17. Júní

Skipulagning fyrir hátíðarhöldin er komin á fullt skrið. Þegar er búið að bóka nokkra dagskrárliði en Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi mun vinna áfram að dagskránni á næstu vikum.

 

2.      Sund- og safnkortið / Kynning

Sund- og safnakortið er nýjung í ferðaþjónustu, sem hefur það að megin markmiði sínu að hvetja ferðamenn og fjölskyldufólk til að sækja sundlaugar og söfn víðsvegar á landinu, og auka þar með áhuga ferðamanna á mismunandi sveitarfélögum. Gera ferðamönnum og fjölskyldu fólki kleyft að sækja þessa staði og kynnast því sem sveitarfélögin hafa upp á að bjóða á hagkvæman og auðveldan hátt. Um er að ræða svipað kort og útilegukortið sem hefur verið í gangi í nokkur ár. Rætt var um það hvort Sundlaug Snæfellsbæjar eigi að vera með í þessu nýja korti. Ýmsar umræður og vangaveltur komu fram og var ákveðið að Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi myndi fá frekari upplýsingar um ýmis atriði er nefndarmönnum þóttu ekki nægilega skýr. Allt utanumhald gæti verið snúið hér í Snæfellsbæ þar sem sundlaugin er ekki búin tölvukerfi. Ekki tekin afstaða til málsins að sinni.

3.      Siðareglur Íþróttafélaga – kynning

Farið var yfir kynningu á siðareglum Íþróttafélaga og farið yfir dæmi um slíkar reglur frá Íþróttafélagi af höfuðborgarsvæðinu. Ákveðið að senda bréf á Ungmennafélögin í Snæfellsbæ þar sem mælst er til að félögin skoði að setja sér slíkar reglur.

4.      Önnur mál

Félagsmiðstöðin Afdrep: Nú fer að líða að lokun félagsmiðstöðvarinnar þetta vorið.  5 – 7 .bekur mun fá að halda sitt lokakvöld þann 16. maí þar sem verður haldin hæfileikakeppni og borðaðar pitsur. Mikil tilhlökkun er hjá krökkunum fyrir kvöldinu. 8-10. Bekkur mun halda sitt lokakvöld í næstu viku.

Sundlaug Snæfellsbæjar: Laga þarf skiltið á Sundlauginni. Rangar upplýsingar um opnunartíma eru á skiltinu. Mikilvægt er að þetta verði lagað fyrir sumarið.

Fleira ekki gert og fundi slitið 18:00


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)