230. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2012 og hófst hann í fundarsal Ráðhúss Snæfellsbæjar kl. 18:00
Mættir:
Kristjana Hermannsdóttir
Jón Þór Lúðvíksson
Kristján Þórðarson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Eyþór Björnsson, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var svo gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
- Bréf frá Markaðsstofu Vesturlands, dags. 9. febúar 2012, varðandi aðkomu Snæfellsbæjar í verkefnum á vegum Markaðsstofu Vesturlands
Bæjarráð samþykkir að ganga til samstarfs við Markaðsstofu Vesturlands um þau verkefni sem tilgreind eru í erindinu með þeim fyrirvara að hin sveitarfélögin á Snæfellsnesi taki þátt.
- Bréf frá sýslumanni Snæfellinga, dags. 6. febrúar 2012, varðandi umsögn um endurnýjun rekstrarleyfis fyrir veitingastað í flokki I, veitingastofa og greiðasölu, að Ólafsbraut 27 í Ólafsvík.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða með fyrirvara um jákvæða umsögn frá umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar.
- Bréf frá sýslumanni Snæfellinga, dags. 2. febrúar 2012, varðandi umsögn um leyfi til að reka gististaði í flokki I, íbúðir, að Keflavíkurgötu 1 og Skólabraut 8 á Hellissandi.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða með fyrirvara um jákvæða umsögn frá umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar.
- Bréf frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga, dags. 8. febrúar 2012, varðandi skólaakstur við Fjölbrautaskóla Snæfellinga haustönn 2011.
Lagt fram til kynningar.
- Bréf frá þingmönnum hreyfingarinnar dags. 7. febrúar 2012, ásamt frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða.
Lagt fram til kynningar.
- Fundarboð aðalfundar Sorpurðunar Vesturlands sem haldinn verður á Hótel Hamri 9. mars 2012.
Kristni Jónassyni falið að fara með atkvæðisrétt Snæfellsbæjar á fundinum.
- Fundarboð aðalfundar héraðsnefndar Snæfellinga sem haldinn verður í Snæfellsbæ 21. mars 2012.
Bæjarráð tilnefnir Kristjönu Hermannsdóttur, Kristján Þórðarson, Jón Þór Lúðvíksson og Kristínu Björgu Árnadóttur sem fulltrúa Snæfellsbæjar og Kristinn Jónasson, Erlu Björk Örnólfsdóttur, Rögnvald Ólafsson og Fríðu Sveinsdóttur til vara.
- Minnispunktar bæjarstjóra.
a. Bæjarstjóri ræddi opinn íbúafund sem haldinn verður í kvöld.
b. Bæjarstjóri ræddi málefni vatnsverksmiðju.
c. Bæjarstjóri ræddi málefni Matís.
d. Bæjarstjóri ræddi fjármál Snæfellsbæjar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:41
Kristjana Hermannsdóttir
Jón Þór Lúðvíksson
Kristján Þórðarson
Kristinn Jónasson
Eyþór Björnsson |