Prentað sunnudaginn 19. maí kl. 01:10 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarstjórn, fundur nr. 235
Dags. 12. Janúar 2012

235. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 12. janúar 2012 og hófst hann í Ráðhúsi Snæfellsbæjar kl. 16:00.

 

Mættir:

Jón Þór Lúðvíksson

Kristín Björg Árnadóttir

Kristjana Hermannsdóttir

            Rögnvaldur Ólafsson

Kristján Þórðarson

Fríða Sveinsdóttir

Pétur Steinar Jóhannsson

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

Eyþór Björnsson, bæjarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Óskaði hann eftir því að fá að taka inn með afbrigðum sem 15. lið erindi frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, er varðar staðfestingu á samningi um almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og Vesturlands er undirritaður var þann 30. desember 2011.

 

Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:

1)       Fundargerð 159. fundar skólanefndar, dags. 21. desember 2011

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2)      Fundargerð 103. fundar hafnarstjórnar, 22. desember 2011

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

3)      Fundargerð 5. fundar ungmennaráðs, 19. desember 2011

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

4)      Fundargerð 6. fundar ungmennaráðs, 21. desember 2011

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

5)      Fundargerð stjórnar Sorpurðunar Vesturlands hf., 16. desember 2011

Lagt fram til kynningar.

 

6)      Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi,  14. desember 2011

Lagt fram til kynningar.

 

Til máls tóku: JÞL, KJ, PSJ og KH

 

7)      Fundargerð 342. fundar  stjórnar Hafnarsambands Íslands, 18. nóvember 2011

Lagt fram til kynningar.

 

8)      Bréf frá bæjarstjóra, dags. 9. janúar 2012, varðandi skipun fulltrúa í svæðisskipulagsnefnd vegna vinnu við svæðisskipulag fyrir Snæfellsnes.

Tillaga um Smára Björnsson, skipulags- og byggingafulltrúa sem fulltrúa Snæfellsbæjar í svæðisskipulagsnefnd.

 

Til máls tóku: JÞL, KJ og KH

 

Samþykkt samhljóða.

 

9)      Bréf frá Svanfríði Hörpu Pálsdóttur og Valgerði Valgeirsdóttur, dags. 10. janúar 2012, varðandi aðstöðu fyrir starfsemi dagmæðra.

Bæjarstjóra falið að ræða við bréfritendur um mögulega útleigu á Líkn á Hellissandi

 

Til máls tóku: JÞL, KJ, KH, KBÁ, RÓ, PSJ og FS

 

Samþykkt samhljóða.

 

10)   Bréf frá Snorraverkefninu, dags. 7. nóvember 2011, varðandi stuðning við Snorraverkefnið sumarið 2012.

Bæjarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

Samþykkt samhljóða.

 

11)    Bréf frá Erni Erlendssyni, dags. 8. desember 2011, varðandi ósk um samþykkt Snæfellsbæjar á afsali vegna Marbakka, landnr. 217364.

Erindið samþykkt samhljóða.

 

12)   Bréf frá Ungmennafélagi Íslands, dags. 3. janúar 2012, varðandi gistingu íþróttahópa.

Erindinu vísað til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar til skoðunar.

 

Samþykkt samhljóða.

 

13)   Bréf frá Viðlagatryggingu Íslands, dags. 20. desember 2011, varðandi viðlagatryggingu á veitum og veitumannvirkjum.

Bæjarstjóra falið að skoða að uppfæra þessi gögn.

 

Samþykkt samhljóða.

 

14)   Bréf frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, dags. 21. desember 2011, varðandi umsókn um byggðakvóta fiskveiðiárið 2011/2012. Ásamt reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2011/2012 og reglugerð um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2011/2012

Rögnvaldur Ólafsson vék af fundi.

 

Gerð er tillaga um að við úthlutun byggðakvóta í Snæfellsbæ (Arnarstapa, Hellissandi, Rif, Ólafsvík), verði farið eftir reglugerð Sjávarútvegsráðuneytisins um úthlutun byggðakvóta til fiskveiðiskipa á veiðiárinu 2011/2012.

 

Þó óskar bæjarstjórn Snæfellsbæjar eftir því að gerðar verði þrjár breytingar á úthlutunarreglum fyrir byggðakvóta í Snæfellsbæ sem eru:

 

1.         Í 1.gr. C lið breytist orðalagið úr „í viðkomandi byggðarlagi“ í „ í viðkomandi sveitarfélagi“.

2.         Í 4. gr. 1.mgr. (8 línu) breytist orðalagið úr „í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags“ í „í þorskígildum talið innan viðkomandi sveitarfélags“.

3.         Í 6. gr. 1. mgr. (lína 1) breytist orðalagið úr „innan hlutaðeigandi byggðarlaga“ í „innan hlutaðeigandi sveitarfélags“.

 

Rök bæjarstjórnar Snæfellsbæjar fyrir þessari breytingu er sú staðreynd að á Arnarstapa og á Hellissandi eru ekki reknar fiskvinnslur og því er ekki hægt að landa afla til vinnslu á þeim stöðum.

 

Ef ráðuneytið verður við þessum óskum, þá mun byggðarkvótinn nýtast innan sveitarfélagsins, en það skiptir miklu máli fyrir Snæfellsbæ að geta nýtt úthlutaðan byggðakvóta.

 

Til máls tóku: JÞL, FS, PSJ og KJ

 

Samþykkt samhljóða.

 

Rögnvaldur Ólafsson kom aftur inn á fundinn.

 

15)   Bréf frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, er varðar staðfestingu á samningi SSV og Vegagerðarinnar um almenningssamgöngur á milli höfuðborgarsvæðisins og Vesturlands er undirritaður var þann 30. desember 2011.

Erindið samþykkt samhljóða.

 

Allir tóku til máls.

 

16)   Minnispunktar bæjarstjóra.

a)           Bæjarstjóri upplýsti að ekki væri búið að skipa fulltrúa í nefnd um Vatnasvæði A. Tillaga  um Smára Björnsson sem fulltrúa í nefnd um vatnasvæði A og Kristinn Jónasson til vara.

b)          Bæjarstjóri ræddi um snjómokstur og kostnað við  

             snjómokstur.

c)          Bæjarstjóri ræddi málefni vatnsverksmiðju.

d)          Bæjarstjóra falið að vinna tillögu um skipun starfshóp um málefni fatlaðra í Snæfellsbæ.

e)          Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að hún álykti til stjónrar

             Rarik ohf.:

 

„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar telur nauðsynlegt að tryggt verði að þegar rafmagn fer af þá verði komið í veg fyrir að spennufall verði í lengri eða skemmri tíma. Þegar spennufall verður þá er mikil hætta á skemmdum í rafmagnstækjum eins og varð í Snæfellsbæ þriðjudaginn 10.janúar 2012. Það er óviðunandi að raforkukaupendur beri það tjón sem af því getur hlotist. Skorar bæjarstjórn Snæfellsbæjar á Rarik ohf. að bæta búnað sinn þannig að þegar spennufall verður, þá verði algjört straumrof þegar í stað, og koma þar með í veg fyrir tjón. „

 

Samþykkt samhljóða

 

f)             Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að hún álykti til 

           stjórnar Landsnets hf.

 

„Bæjarstjórn Snæfellsbæjar telur nauðsynlegt að reist verði ný raflína á milli Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar (Ólafsvíkur) til að tryggja afhendingaröryggi rafmagns í Snæfellsbæ. Með slíkri línu yrði komið á hringtengingu á Snæfellsnesi sem myndi auka öryggi á afhendingu raforku. Skorar bæjarstjórn Snæfellsbæjar á stjórn Landsnets hf. að ráðast í framkvæmdir við nýja raflínu sem allra fyrst.“

 

            Samþykkt samhljóða.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  16:24

 

Jón Þór Lúðvíksson

Fríða Sveinsdóttir

Kristín Björk Árnadóttir

Kristjana Hermannsdóttir

Kristján Þórðarson

Pétur Steinar Jóhannsson

Rögnvaldur Ólafsson

Kristinn Jónasson

Eyþór Björnsson


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)