228. fundur bæjarráðs Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 15. desember 2011 og hófst hann í fundarsal Ráðhúss Snæfellsbæjar kl. 12:00
Mættir:
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Kristján Þórðarson
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Eyþór Björnsson, bæjarritari
Formaður bæjarráðs setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna á fundinn. Var svo gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá:
1) Fjárhagsáætlun 2012 – Tillaga að styrkjum.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að styrkjum.
Til viðbótar framlögðum lista er lagt til að veita 500 þús. kr. styrk til nýs íþróttafélags vegna barnastarfs í Snæfellsbæ.
Af liðnum aðrir styrkir til lista- og menningamála er lagt til að veitt verði 50 þús. kr. til Kristjáns Helgasonar vegna fréttamappa.
Samþykkt samhljóða.
2) Fjárhagsáætlun 2012 og þriggja ára áætlun 2013 - 2015.
Tillögur frá almenningi lagðar fram á fundinum. Ennfremur lögð fram erindi frá forstöðumönnum stofnana Snæfellsbæjar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsáætlun 2012 og þriggja ára áætlun 2013 – 2015. Ásamt fjárfestingaáætlun 2012.
Samþykkt samhljóða.
3) Bréf frá sýslumanni Snæfellinga, dags. 8. desember 2011, varðandi umsókn um leyfi til að reka gistihús og veingastað að Langaholti, Staðarsveit.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða með fyrirvara um jákvæða umsögn frá umhverfis- og skipulagsnefnd Snæfellsbæjar.
4) Bréf frá sýslumanni Snæfellinga, dags. 6. desember 2011, með ósk um heimild sveitarfélagsins til að mega afskrifa ógreitt útsvar.
Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða.
5) Bréf frá Samkeppniseftirlitinu, dags. 8. desember 2011, varðandi erindi Almennu umhverfisþjónustunnar ehf.
Bæjarstjóra og bæjarlögmanni falið að svara erindi Samkeppniseftirlitsins.
Samþykkt samhljóða.
6) Bréf frá bæjarstjórn Grundarfjarðar, dags. 12. desember 2011, varðandi fyrirhugaðan niðurskurð hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur bæjarráðs Grundarfjarðar varðandi niðurskurð hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
7) Bréf frá innanríkisráðuneytinu, dags. 8. desember 2011, varðandi áætluð úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2012.
Lagt fram til kynningar.
8) Bréf frá Félagi tónlistarskólakennara, dags. 6. desember 2011, varðandi ályktun gegn niðurskurði í tónlistarskólum.
Lagt fram til kynningar.
9) Bréf frá Félagi leikskólakennara, dags. 30. nóvember 2011, með fyrirspurn um niðurskurð í leikskólum.
Lagt fram til kynningar.
10) Minnispunktar bæjarstjóra.
Ekkert undir minnispunktum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:00
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Kristján Þórðarson
Kristinn Jónasson
Eyþór Björnsson
|