Prentað laugardaginn 25. maí kl. 08:04 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Skólanefnd Snæfellsbæjar, fundur nr. 157
Dags. 26. Maí 2011

Fundargerð skólanefndar

 

157. skólanefndarfundur

Fundur haldinn 26. maí 2011 í GSNB í Ólafsvík kl. 18:00

 

 

Mætt: Örvar Marteinsson, Elfa Ármannsdóttir, Ingigerður Stefánsdóttir, Júníana Óttarsdóttir,  Steinunn Ingibjörnsdóttir. Valentina Kay, Auður Sigurjónsdóttir og Júníana Bj. Óttarsdóttir.

 

Örvar Marteinsson, formaður, setti fund og stýrði.

 

1.     Minnispunktar stjórnenda:

a)     Elfa Ármannsdóttir, aðstoðarskólastjóri:

Þann þrítugasta maí verður útskrift 10. Bekkjar og þann 31. maí verða skólaslit fyrir 1. – 9. bekk á Klifi, kl. 12 en kl. 14 á Lýsuhóli. Þrír starfsdagar verða svo hjá kennurum eftir þetta. Fundir verða v. Comeníusarverkefni í byrjun júní þar sem erlendir gestir frá samstarfsskólum úr ýmsum löndum koma.

Fjárhagsáætlun er innan ramma og auglýst var eftir kennurum um síðustu helgi. Mikið verður um framkvæmdir á næstunni. Skipt verður um þak á nýja hluta skólahúsnæðisins í Ólafsvík. Hagræða verður innan veggja skólans vegna fjölgunar bekkja. Húsnæðið á Hellissandi verður málað að utan í sumar. Móta þarf sérdeild í Ólafssvík og „atferlisver er í mótun á Hellissandi.

 

b)    Ingigerður Stefánsdóttir leikskólastjóri:

Leikskólastjóri og aðstoðarleikskólastjóri sóttu fund á vegum Sambands ísl, Sveitarfélaga um skyldur og ábyrgð skólanefnda í byrjun maí. – fskj. 236

Auglýst hefur verið eftir aðstoðar og sérkennslustjóra við Kríuból.

Leikskólastjóri leggur fram bréf vegna óskar um aukið stöðugildi vegna umsóknar fatlaðs barns sem er væntanlegt inn á Krílakot í júníbyrjun. Skólanefnd vísar til bréfs sem sent var forseta bæjarstjórnar 26. maí, þar sem alvarleiki málsins kemur fram.

 Á Krílakoti þurfa 15 börn af 57 sérkennslu – úrræði og á Kríubóli 10 börn.

Leikskólastjóri lagði fram bréf frá Umhverfisstofnun vegna öryggismála á leiksvæðum leikskóla. Með vísan í bréfið (fskj 258) vill skólanefnd ítreka tillögur sínar um breytingar á leikskólalóðum Snb sem stuðla að bættu öryggi.

Skólanefnd vill ítreka enn og aftur nauðsyn þess að girðiðngin umhverfis Kríuból verði sett upp.

 

c)     Valentina Kay, tónlistarskólastjóri:

Vorprófum er lokið og vortónleikar voru 9. 10. og 11. maí.

Innritun fyrir næsta skólaár var í gær og í dag, 26. Maí.

Tónlistarskólastjóri kynnti námsvísi sem var dreift í öll hús í Snb.

 

2.     Önnur mál:

Formaður óskaði eftir því að farið yrði yfir skólastefnu Snæfellsbæjar snemma á næsta hausti.

 

Formaður þakkaði fundarfólki fyrir veturinn.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:25

 


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)