Lista- og menningarnefnd, fundur nr. 81
Fundur lista- og menningarnefndar haldinn þann 2.5.2011 kl. 18:00
1. Kári Viðarsson mætti á fundinn og ræddi um leikhús og leiksýningu sem hann mun setja upp á Rifi. Húsnæðið verður hugsað annars vegar sem leikhús og hins vegar sem æfingarhúsnæði fyrir leikhópa sem koma hingað. Ákveðið að taka styrkbeiðni fyrir á næsta fundi.
2. Ákveðið hefur verið að hafa útilistasmiðju fyrir börn í júlí. Sólveig Eiríksdóttir, kennari, mun hafa umsjón með smiðjunni.
3. Tekin fyrir beiðni frá Lionsklúbb Ólafsvíkur vegna kostnaðar við auglýsingu myndarinnar „Okkar eigin Osló“. Ákveðið að styrkja klúbbinn um 19.000 kr.
4. Gunnsteinn sagði frá leiksýningunni „Djúpið“ sem áætlað er að sýna hér í haust. Leiksýningin byggir á einleik Ingvars E. Sigurðssonar, leikara.
Fundi slitið kl. 19:30
Mættir:
Þórdís Björgvinsdóttir
Guðrún Anna Oddsdóttir
Guðrún Jenný Sigurðardóttir
Gunnsteinn Sigurðsson
Ragnheiður Víglundsdóttir
|