228. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 9. júní 2011 og hófst hann í Ráðhúsi Snæfellsbæjar kl. 12:00.
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Kristjana Hermannsdóttir
Kristín Björg Árnadóttir
Rögnvaldur Ólafsson
Kristján Þórðarson
Fríða Sveinsdóttir
Erla Björk Örnólfsdóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð fundarmenn velkomna á þennan fyrsta fund í nýju Ráðhúsi Snæfellsbæjar. Óskaði hann eftir því að fá að taka inn með afbrigðum sem 22. lið fundargerð 62. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 7. júní 2011. Var það samþykkt og að því loknu gengið til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:
1) Fundargerð 223. fundar bæjarráðs, dags. 31. maí 2011.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2) Fundargerð 13. fundar lista- og menningarnefndar, dags. 2. maí 2011.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3) Fundargerð 157. fundar skólanefndar, dags. 26. maí 2011, ásamt bréfi Neytendastofu varðandi eftirlit með leikvallatækjum í notkun.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
4) Fundargerðir 110. og 111. fundar Félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 3. og 31. maí 2011.
Lagt fram til kynningar.
5) Fundargerð 118. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 10. mars 2011.
Lagt fram til kynningar.
6) Fundargerð samgöngunefndar SSV, dags. 13. apríl 2011.
Lagt fram til kynningar.
7) Fundargerð 5. aðalfundar Menningarráðs Vesturlands, dags. 18. apríl 2011.
Lagt fram til kynningar.
8) Fundargerð 8. aðalfundar Heilbrigðisnefndar Vesturlands, dags. 2. maí 2011, ásamt ársskýrslu Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
Lagt fram til kynningar.
9) Fundargerð 787. fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 27. maí 2011.
Lagt fram til kynningar.
10) Fundarboð aðalfundar Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi, dags. 9. júní 2011.
Lagt fram til kynningar.
11) Bréf frá UMF Reyni, dags. 30. maí 2011, varðandi niðurfellingu á húsaleigu í Röst.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar samþykkti samhljóða að verða við beiðni um niðurfellingu á húsaleigu í Röst, en vill taka það fram að niðurfellingin á ekki við um þrif, STEF gjöld og önnur aukagjöld sem fylgt gætu útleigu sem þessari.
Bæjarstjórn vill líka benda á að beiðnir sem þessar þurfa að berast bæjarstjórn áður en atburður fer fram.
12) Bréf frá Skólahreysti, dags. í maí 2011, varðandi stuðning vegna Skólahreystiverkefnisins.
Samþykkt að styrkja verkefnið um kr. 50.000.-
Bæjarstjórn vill lýsa ánægju sinni með Skólahreystiverkefnið og telur það afskaplega auðgandi fyrir líkama og sál.
13) Bréf frá Landskerfi bókasafna, dags. 10. maí 2011, varðandi aðalfund Landskerfis bókasafna hf.
Lagt fram til kynningar.
14) Bréf frá UMFÍ, dags. 4. maí 2011, varðandi málþingið „Þátttaka er lífsstíll – ungt fólk á Snæfellsnesi“.
Lagt fram til kynningar.
15) Bréf frá Varasjóði húsnæðismála, ódags., varðandi úthlutun framlaga vegna sölu félagslegs íbúðahúsnæðis.
Lagt fram til kynningar.
16) Bréf frá UMFÍ, dags. 20. maí 2011, varðandi ráðstefnuna „Ungt fólk og lýðræði“
Samþykkt samhljóða að áframsenda erindið til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
17) Bréf frá Orkusölunni, dags. 1. júní 2011, ásamt bréf Landsvirkjunar til Orkusölunar, varðandi uppsögn á samningum um ótryggða orku.
Lagt fram til kynningar.
18) Kosning forseta bæjarstjórnar til eins árs.
Tillaga kom um Jón Þór Lúðvíksson.
Tillagan samþykkt samhljóða.
19) Kosning 1. og 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs.
Tillaga kom um Kristján Þórðarson sem fyrsta varaforseta bæjarstjórnar.
Tillagan var felld með 4 atkvæðum gegn 3.
J-listinn lýsti miklum vonbrigðum með þessa niðurstöðu, hún sé ekki í takt við annars gott samstarf í bæjarstjórn Snæfellsbæjar.
Tillaga kom um Rögnvald Ólafsson sem fyrsta varaforseta bæjarstjórnar
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum gegn 3.
Tillaga kom um Kristján Þórðarson sem annan varaforseta.
Tillagan samþykkt með 4 atkvæðum, 3 sátu hjá.
20) Kosning þriggja aðila og jafnmargra til vara í bæjarráð til eins árs.
Tillaga kom um eftirfarandi:
aðalmenn varamenn
Kristjana Hermannsdóttir - D Jón Þór Lúðvíksson – D
Kristín Björg Árnadóttir - D Rögnvaldur Ólafsson - D
Kristján Þórðarson - J Fríða Sveinsdóttir – J
Tillagan samþykkt samhljóða
21) Umboð til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu mála í sumarleyfi bæjarstjórnar.
Forseti bæjarstjórnar gerði það að tillögu sinni að bæjarstjórn veiti bæjarráði fullt umboð til að starfa sem bæjarstjórn vegna sumarleyfis bæjarstjórnar frá 9. júní, júlí og ágúst, með vísan til 3. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Tillagan samþykkt samhljóða
22) Fundargerð 62. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 7. júní 2011.
Varðandi 1. lið fundargerðarinnar, umsókn um lóð við Smiðjugötu 5 í Rifi, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 2. lið fundargerðarinnar, skil á lóð við Músaslóð 8 á Arnarstapa, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 3. lið fundargerðarinnar, umsókn um stækkun á lóð við Hafnargötu 26 í Rifi, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 4. lið fundargerðarinnar, breytingu á deiliskipulagi frístundahúsa á Hellnum, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 5. lið fundargerðarinnar, nýtt deiliskipulag fyrir íbúðarhús á og við Selhól á Hellissandi, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 6. lið fundargerðarinnar, deiliskipulag svæðis fyrir tómstundabúskap sunnan Hellissands við Fjárborg, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 7. lið fundargerðarinnar, ósk um samþykki á afstöðuuppdrætti að Hraungerði í Breiðuvík, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 8. lið fundargerðarinnar, breyttar teikningar vegna bílskúrs að Varmalæk, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 9. lið fundargerðarinnar, ósk um að fá að breyta gluggum að Brautarholti 10, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 10. lið fundargerðarinnar, umsókn um leyfi fyrir kofa á lóð við Geirakot III, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 11. lið fundargerðarinnar, umsókn um að fá að setja hurð út á pall að Grundarbraut 48, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 12. lið fundargerðarinnar, umsókn um að fá að setja hurð og sólpall við húsið að Gröf, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 13. lið fundargerðarinnar, umsókn um geymsluskúr við Miðbrekku 17 í Ólafsvík, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 14. lið fundargerðarinnar, umsókn um breytingar á Naustabúð 21 á Hellissandi, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 15. lið fundargerðarinnar, umsókn um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði við Smiðjugötu 5 í Rifi, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 16. lið fundargerðarinnar, umsókn um að fá að setja skilti í þjóðgarðinum, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 17. lið fundargerðarinnar, umsókn um byggingarleyfi fyrir nýtt vigtarhús í Rifi ásamt leyfi til að rífa núverandi vigtarskúr, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 18. lið fundargerðarinnar, umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir veg og vatnsborun við Þórdísarflöt á Hellnum, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 20. lið fundargerðarinnar, umsókn um rekstrarleyfi fyrir gististað og hestaferðir að Gröf, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Varðandi 21. lið fundargerðarinnar, ósk um friðlýsingu á Munaðarhóli, þá samþykkir bæjarstjórn samhljóða afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar.
Til máls tóku JÞL, KÞ, KJ, FS, KH, KBÁ, EBÖ, RÓ
23) Minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri kynnti stöðuna í eftirfarandi málum:
a) Formleg opnun á nýja tjaldsvæðinu á Hellissandi verður í dag kl. 13:30
b) Það var opið hús í Ráðhúsinu á laugardaginn var og gekk það ljómandi vel og fjöldi fólks mætti til að skoða húsnæðið.
c) Rætt um málefni vatnsverksmiðjunnar í Rifi.
d) Farið var yfir kostnað á uppfærslu á bókhaldskerfi Snæfellsbæjar ásamt því hvað í uppfærslunni felst. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að setja í þetta verkefni aukafjárveitingu allt að kr. 3.000.000.-
e) Kristín Björg kynnti verkefni um tækifæri í heimabyggð sem Atvinnuráðgjöf SSV, Snæfellsbær, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, Átthagastofa Snæfellsbæjar og ALTA ehf. hafa verið að vinna að.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:25 |