Prentað þriðjudaginn 21. maí kl. 10:21 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Bæjarstjórn, fundur nr. 223
Dags. 3. Febrúar 2011

223. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn fimmtudaginn 3. febrúar 2011 og hófst hann í Félagsheimilinu Klifi kl. 18:00.

 

Mættir:

Jón Þór Lúðvíksson

Kristjana Hermannsdóttir

               Kristín Björg Árnadóttir

               Rögnvaldur Ólafsson        

Fríða Sveinsdóttir

Erla Björk Örnólfsdóttir

Kristján Þórðarson

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri

Lilja Ólafardóttir, bæjarritari

 

Forseti bæjarstjórnar setti fund, bauð fundarmenn velkomna.  Óskaði hann eftir því að fundarmenn myndu byrja á að syngja afmælissönginn fyrir afmælisbarn dagsins, Fríðu Sveinsdóttur.  Var það gert með góðum tilþrifum og var síðan gengið til boðaðrar dagskrár.

 

Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:

1)         Fundargerð 57. fundar atvinnumálanefndar, dags. 11. janúar 2011.

Varðandi 1. lið þá vill bæjarstjórn benda á að Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga er búin að auglýsa námskeið fyrir dagforeldra.  Varðandi 3. lið, þá telur bæjarstjórn það mjög gott mál ef hægt væri að endurvekja þessa hátíð í einhverri mynd.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

2)         Fundargerð 33. fundar stjórnar Jaðars, dags. 24. janúar 2011.

Bæjarstjóri fór yfir það hvernig endurbætur á eldra húsnæði Jaðars ganga.  Kostnaðurinn verður að öllum líkindum um 10 milljónum meiri en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins, en fyrir vikið verður aðstaðan mjög góð og viðhaldslítil í einhver ár.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

3)         Fundargerð 54. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar, dags. 18. janúar 2011.

Bæjarstjórn vildi lýsa ánægju sinni með það að ungmennaráð væri komið í gang.  Bæjarstjóri upplýsti hugmynd ungmennaráðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa um vísi að ungmennahúsi fyrir 16-20 ára, sem verður reynt tvo daga í viku fram á vorið.  Búið er fá aðila til að hafa umsjón með þessu starfi, hins vegar bera ungmennin ábyrgðina sjálf.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

4)         Fundargerð 62. fundar Pakkhússnefndar, dags. 24. janúar 2011.

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

 

5)         Fundargerð 5. fundar þjónusturáðs Vesturlands, dags. 10. janúar 2011.

Lagt fram til kynningar.

 

6)         Fundargerð 106. fundar félagsmálanefndar Snæfellinga, dags. 11. janúar 2011.

Lagt fram til kynningar.

 

7)         Fundargerðir 46., 47., 48., 49. og 50. fundar Menningarráðs Vesturlands, dags. 25. ágúst, 6. október og 8. nóvember 2010 og 5. janúar og 19. janúar 2011.

Lagt fram til kynningar.

 

8)         Fundargerð 116. fundar Breiðafjarðarnefndar, dags. 9. desember 2010.

Lagt fram til kynningar.

 

9)         Fundargerð stjórnarfundar SSV, dags. 10. janúar 2011.

Lagt fram til kynningar.

 

10)     Bréf frá SSV, dags. 24. janúar 2011, varðandi sameiginlega aðkomu sveitarfélaga á Vesturlandi að endurskipulagningu Háskólans á Bifröst, ásamt greinargerð um „Stjórnendanám fyrir starfsmenn sveitarfélaga“.

Bæjarstjórn telur þetta afar áhugavert nám sem verið er kynna og óskar Háskólanum í Bifröst alls hins besta.  Bæjarstjórn þakkar gott boð, en telur sér ekki fært að mæta á fundinn..

 

11)     Bréf frá SSV, dags. 21. janúar 2011, varðandi viðbótarvegtolla til Vesturlands, ásamt samningi um vegtengingu við utanverðan Hvalfjörð.

Bæjarstjórn tekur undir þessa ályktun SSV.

 

12)     Bréf frá Guðjóni Bragasyni, dags. 14. janúar 2011, varðandi áhrif nýrra mannvirkjalaga á umboð byggingarnefnda.

Ofangreint til umræðu á fundinum og verður áfram til umfjöllunar, afgreiðslu frestað.

 

13)     Bréf frá stjórn Lögreglufélags Vesturlands, ódags., varðandi varhugaverða þróun löggæslumála á Vesturlandi.

Bæjarstjórn tekur heilshugar undir áhyggjur Lögreglufélags Vesturlands af fækkun lögreglumanna og öryggi íbúa á svæðinu.

 

14)     Minnisblað bæjarstjóra, dags. 31. janúar 2011, varðandi ferð til Vestmanna.

Tillaga kom um það að bæjarráð, auk bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar fari í heimsókn til Vestmanna í júní.

Tillagan samþykkt samhljóða.

 

15)     Þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar fyrir árin 2012-2014.

Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þriggja ára áætlun Snæfellsbæjar fyrir árin 2012-2014.

 

16)      Minnispunktar bæjarstjóra

Bæjarstjóri kynnti eftirfarandi

a)       Haldinn verður sameiginlegur fundur um svæðisgarða, með Grundarfirði og Stykkishólmi.  Fundurinn verður haldinn á þriðjudaginn í Stykkishólmi.

b)       Málefni vatnsverksmiðjunnar í Rifi.

 

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 19:45


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)