Prentað fimmtudaginn 23. maí kl. 16:07 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Pakkhússnefnd, fundur nr. 60
Dags. 22. Nóvember 2010

60. Pakkhússnefndarfundur

22.11.2010                                                                                               kl 20:00 til 22:00

Fundinn sátu Barbara Fleckinger (formaður), Elsa Bergmundsdóttir og Lovísa Sævarsdóttir (aðalmenn)

 

Formaður setti fund og byrjaði með því að þakka nefndinni fyrir gott samstarf hingað til (sérstaklega á barnakaffihúsinu sem Pakkhússnefndin stóð fyrir þann 12.11.2010)

Formaður tilkynnti að Unnur Emanuelsdóttir væri að gefa Pakkhúsinu 8 gervikerti fyrir desemberopnunina  og þökkum við henni hjartanlega fyrir.

1.     Talað var um desemberopnunina og hvaða daga Pakkhússnefndin þarf að hjálpa Önnu Þóru og að Pakkhúsnefndin ætlar að sjá um opnunina þann 19.12. „jól frá ýmsum löndum“

2.     Samþykkt var að breyta engum siðum og bjóða upp á jólaglöggið þann 23.12. sem bærinn mun bjóða öllum bæjarbúum upp á.

3.     Skipulagning fyrir 24.11., föndurkvöld, þar sem verður heklað og prjónað skraut fyrir Pakkhúsið. Það þarf að kaupa garn, mjólk og kaffi og brauðtertur sem eru gerðar með gamla laginu af Kristbjörgu Karlsdóttur. Ennig verða keypt viskustykki til að eiga í Pakkhúsinu.

4.     Rædd hugmynd um að hafa vasaljósakvöld með draugasögum fyrir börn í janúar og öskupokagerð með fræðslu um þennan gamla sið í febrúar.

5.     Formaðurinn tilkynnti að hann sé boðinn á fund hjá lista- og menningarnefnd til að ræða um samstarf beggja nefnda í framtíðinni

 

Ritari: Barbara Fleckinger

 

Barbara Fleckinger

Elsa Bergmundsdóttir

Lovísa Sævarsdóttir


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)