Prentað miðvikudaginn 22. maí kl. 12:44 af www.snb.is
Viltu verða áskrifandi?
Leit í fundargerðum:
Ítarlegri leit
Atvinnumálanefnd, fundur nr. 57
Dags. 11. Janúar 2011

57. fundur Atvinnumálanefndar Snæfellsbæjar haldinn í Átthagastofu Snæfellsbæjar 11.janúar 2011 kl.17:00

 

Mættir:

Aðalmenn: Margrét Björk Björnsdóttir,  Björg Bára Halldórsdóttir,  Þorkell Símonarson og Guðrún Lára Pálmadóttir varamaður Erlu Bjarkar.

 

Fundargerð ritaði: Björg Bára Halldórsdóttir.

 

Dagskrá:

 

1.      Umræður um dagforeldra. 54 börn eru í Snæfellsbæ yngri en tveggja ára. Börn eru tekin inn á leikskóla við 18 mánaða aldur. Engir dagforeldrar eru með starfsleyfi í dag í Snæfellsbæ. Vitað er um vöntun á dagforeldrum. Mikilvægt er að þessi þjónusta sé til staðar í bæjarfélaginu.

Atvinnumálanefnd leggur til að Snæfellsbær standi fyrir námskeiði fyrir dagforeldra. Með því er líklegt að í ljós komi hvort einhverjir hafi áhuga á að setja á fót slíka starfsemi.

 

2.      Byggðakvóti. Umræður um byggðakvóta og almennt um fiskveiðikvóta. Atvinnumálanefnd fagnar allri aukningu á fiskveiðikvóta til byggðarlagsins sem væntanlega mun þýða aukna atvinnu.

 

3.      Önnur mál. Þorkell velti upp hugmynd um endurkomu „Vors undir Jökli“ í einhverri mynd.  Rætt um matartengda uppákomu með menningarlegu ívafi. Margrét Björk taldi þetta ríma við verkefni sem er í vinnslu sem nefnt er „Matarkistan“ og er unnið í samstarfi SSV, Matís og fleiri. Allir sammála að halda þessari hugmynd á lofti og ræða á næstu fundum.

Margrét Björk sagði frá því að tillaga nefndarinnar um að sérstakur aðili sinnti markaðsmálum á vegum Snæfellsbæjar hefði verið samþykkt á fundi bæjarstjórnar í desember.

 

Fleira ekki gjört og fundi slitið kl.18:40.


Til baka
Atvinnumálanefnd (32)   Brunamálanefnd (6)   Bæjarráð (132)   Bæjarstjórn (199)   Félagsmálanefnd Snæfellinga (12)   Hafnarstjórn (39)   Húsnæðisnefnd (19)   Húsnæðisnefnd eldri borgara (3)   Íþrótta- og æskulýðsnefnd (48)   Landbúnaðarnefnd (16)   Lista- og menningarnefnd (81)   Pakkhússnefnd (50)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins á Klifi (26)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Rastar (7)   Rekstrarnefnd Félagsheimilisins Snæfells (3)   Rekstrarstjórn Félagsheimilisins á Lýsuhóli (1)   Skipulags- og byggingarnefnd (50)   Skólanefnd Snæfellsbæjar (129)   Skólanefnd Tónlistarskólanna í Snæfellsbæ (6)   Stjórn Jaðars (36)   Umhverfis- og náttúruverndarnefnd (5)   Umhverfis- og skipulagsnefnd (77)   Ungmennaráð (7)   Þjónustuhópur aldraðra (13)